Hnokki enn til sölu: Uppsett verð er 43 milljónir
Hnokki frá Fellskoti er eini hestur eignahaldsfélagsins Skovbogaard sem enn er óseldur skv. upplýsingum frá Lene Lykke Nielsen, talsmanni lögmannastofunna Lett í Danmörku sem fer með málefni Skovbogaard, sem útskurðað var gjaldþrota í vor.
Meðal eigna Skovbogaard voru 13 hross, þ.á.m. töltmeistarinn Hnokki og stóðhestarnir Örn frá Efri-Gegnishólum, Gellir frá Árbakka og Hrannar frá Hvolsvelli.
„Ég get staðfest að öll hrossin, nema Hnokki frá Fellskoti eru seld. Enn er hægt að leggja fram tilboð í Hnokka og eru áhugasömum kaupendum velkomið að hafa beint samband við mig í gegnum netfangið [email protected],“ segir Lene Lykke.
Nokkur formleg tilboð hafi borist í Hnokka frá áhugasömum kaupendum víðs vegar í Evrópu, segir Lene Lykke, en ekkert þeirra hefur verið samþykkt af veðhafa.
Uppsett verð fyrir töltmeistaranum er samkvæmt Lene Lykke 2 milljónir danskra krónur, eða rúmar 43 milljónir íslenskra króna. Salan á Hnokka er bundinn skilyrðum en allar upplýsingar varðandi hana má nálgast á heimasíðu Skovbogaard.
Hnokki er enn í þjálfun Jóhanns Skúlasonar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH