„Höfum þróast með því sem er að gerast í heiminum“
Dagana 15. og 16. maí fór fram afar áhugaverð alþjóðleg ráðstefna á Hólum í Hjaltadal þar sem sjónum var beint að dýrastuddri nálgun í heilbrigðis-, mennta- og félagsþjónustu. Á ráðstefnunni, sem haldin var í samstarfi við Gló stuðningsfélag, komu saman sérfræðingar víðsvegar að úr heiminum til að deila þekkingu sinni á því hvernig samskipti manna og dýra, þá sérstaklega hesta, geta haft jákvæð áhrif á sál og líkama.
Fjallað var um lífeðlisfræðileg áhrif samveru við dýr, mikilvægi velferðar beggja aðila og hvernig íslenski hesturinn getur gegnt lykilhlutverki í meðferðarstarfi.
Viðtal við Dr. Svein Ragnarsson
Guðbjörn Tryggvason hjá Eiðfaxa hitti Dr. Svein Ragnarsson, prófessor við Hestafræðideild Háskólans á Hólum, í tilefni ráðstefnunnar. Í viðtalinu ræða þeir þá miklu möguleika sem felast í því að nýta íslenska hestinn markvisst í þjónustu- og meðferðarskyni og mikilvægi þess að byggja slíka þjónustu á traustum rannsóknum. Til stendur að bjóða upp á nám í þessum fræðum og fer Sveinn Ragarnasson meðal annars yfir það auk rannsókna sem framkvæmdar eru á þessu sviði.
Við hvetjum alla til þess að horfa á viðtalið í spilaranum hér að neðan.
„Höfum þróast með því sem er að gerast í heiminum“
150 plássum bætt við
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
Glæsilegu WR Íþróttamóti Sleipnis lokið