Hvílum flugeldana þetta árið

  • 29. desember 2022
  • Fréttir
Styrkjum frekar björgunarsveitirnar beint

Nú þegar líða fer að áramótum og hestamenn fara að búa sig undir tíma flugeldanna, sem hófst í dag. Langar okkur starfsfólki Eiðfaxa að hvetja hestamenn, sem og aðra til að hvíla flugeldana í ár og styrkja frekar björgunarsveitirnar beint.

Þeir sem halda lausagöngu hross hafa áhyggjur af því að hestarnir fælist og geti jafnvel farið yfir girðingar og skurði í fannferginu. Mikið erum snjó, sérstaklega á Suðurlandi, og eru girðingar á mörgum stöðum í kafi og skurðir fullir.  Það er þekkt að hross taki á rás vegna sprengjuhvellanna og í djúpum snjónum komast þeir líklega yfir margt sem hefði annars hindrað för þeirra. Mjög erfitt er að stöðva hóp af hrossum eftir að þau fara af stað og getur þetta skapað stórhættu.

Í viðtali við RÚV, biður Sveinn Steinarsson, hrossabóndi á Suðurlandi og formaður deildar hrossabænda innan Bændasamtakanna, fólk um að sýna tillit nærri hestasvæðum. Það er fátt annað hægt að gera en að biðja fólk sem sprengir flugelda nálægt hestasvæðum að sýna tillit. Annars eru við hestamenn með ýmis ráð sem hægt er að nota til að reyna að halda rónni.

„En auðvitað er það sem við getum við sem erum með útigangshross er að við reynum að tryggja það sé nóg fóður. Þau séu upptekin af fóðrinu og fari ekki frá því.“

Smelltu hér til að styrkja Björgunarsveitirnar

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link