Ingibergur og Sólveig fljótust í 100 metra skeiði
Þátttökurétt í tölti og kappreiðum ráðast af stöðulistum löglegra móta sem lokið var fyrir 17. júní 2024.
Keppni í 100 metra skeiði er alltaf spennandi á Landsmóti og allt bendir til þess að á því verði enginn breyting í ár. Til þess að komast á Landsmót þurfti tímann 7,78 sekúndur.
Fyrir helgi voru stöðulistar birtir og þau pör tilgreind sem náð hafa inn í þær fjölmörgu greinar sem keppt er í á landsmóti í skeið- og íþróttagreinum.
Ingibergur Árnason og Sólveig frá Kirkjubæ eiga besta tíma ársins sem er 7,30 sekúndur. Annan besta tíma ársins á Sveinn Ragnarsson á Kvisti frá Kommu 7,49 sekúndur og í því þriðja er Konráð Valur Sveinsson á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu á 7,50 sekúndum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH