Ískappleikum frestað
FRESTAÐ! því miður þurfum við enn á ný að fresta mótinu um viku. Við erum alls ekki hætt við og bíðum bara eftir góðu veðri.
Ískappleikar Léttis verða haldnir Laugardaginn 8. mars á Leirutjörninni í hjarta bæjarins okkar.
Hryssu og stóðhestasýningar. Allir velkomnir. Kynning.
Tölt á beinni braut – karlaflokkur – Heldrimannaogkvennaflokkur 50+, kvennaflokkur, yngri en 18 ára (3 inná í einu)
100 metra skeið fljótandi start.
Töltkeppnin fer þannig fram að fyrst er forkeppni með 3 inná í einu og svo fara 5 efstu í hverjum flokki í úrslit.
Sýna skal
Hægt tölt eina umferð. Tölt með hraðamun eina umferð, og fegurðaralvöru ístölt ein umferð.
2 dómarar dæma.
Skráningar í netfangið [email protected] fyrir kl 23.00 föstudaginn 7 mars.
Skráningargjald kr 1000 hver skráning (í tölt og skeið.) greiðist á staðnum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH