Landsamband hestamanna Íslandsmót fullorðna og ungmenna á Selfossi

  • 25. október 2024
  • Fréttir
Enginn áhugi að halda Íslandsmót barna og unglinga og áhugamannamót Íslands

Guðni Halldórsson formaður LH kynnti skýrslu stjórnar á Landsþingi Landsambands hestamannafélaga sem hófst kl. 13:00 í dag í Borgarnesi.

Þar kom fram að eitt hestamannafélag sótti um að halda Íslandsmót fullorðna og ungmenna en það var hestamannafélagið Sleipnir. Mun mótið því verða haldið á Brávöllum á Selfossi, félagssvæði Sleipnis, síðustu helgina í júní.

Ekkert félag sótti um að halda Íslandsmót barna og unglinga né Áhugamannamót Íslands.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar