Íslandsmót og Áhugamannamót 2025 auglýst til umsóknar
Íslandsmót fullorðinna og ungmenna, Íslandsmót barna- og unglinga og Áhugamannamót Íslands árið 2025 eru auglýst til umsóknar fyrir áhugasama og metnaðarfulla mótshaldara.
Dagsetningar mótanna eru eftirfarandi:
- Íslandsmót fullorðinna og ungmenna 26. til 29. júní
- Íslandsmót barna og unglinga 17. til 20. júlí
- Áhugamannamót Íslands, dagsetning ákveðin í samráði við mótshaldara
Á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna skal keppt í einum styrkleikaflokki í hvorum flokki fyrir sig, keppt í greinum þar sem keppendur eru einir inni á vellinum í einu, en það eru V1, F1, T1, T2 ásamt skeiðgreinum, PP1, P1, P2 og P3. Þátttökurétt hafa pör sem á keppnisárinu hafa náð lágmarkseinkunn í hverri grein, keppnisnefnd LH gefur út lágmörkin í febrúar.
Þátttökuréttur á Íslandsmóti barna og unglinga er opinn öllum keppendum þessara flokka og keppt skal í eftirfarandi greinum:
Börn: V2, T3, T4 og gæðingalist.
Unglingar: V1, T1, F2, T4, gæðingalist og skeiðgreinar.
Á Áhugamannamóti Íslands skal keppt í einum styrkleikaflokki, 1. flokki, og keppnisgreinar eru T3, T4, T7, F2, V2, V5, gæðingaskeið, 100m. skeið, ásamt A-flokki og B-flokki gæðinga. Þátttökurétt á Áhugamannamóti Íslands hafa allir sem náð hafa 22 ára aldri á keppnisárinu og hafa ekki keppt í meistaraflokki í íþóttakeppni á síðastliðnum 5 árum.
Mótshöldurum er heimilt að bjóða upp á fleiri greinar kjósi þeir svo, sem og sýningargreinar en í sýningargreinum skal ekki krýna Íslandsmeistara.
Umsóknir áhugasamra mótshaldara skulu berast Landssambandi hestamannafélaga fyrir 1. október nk. á netfangið lh@lhhestar.is
www.lhhestar.is