Íþróttadómarar á Heimsmeistaramótinu
Stjórn FEIF hefur ákveðið yfirdómara fyrir heimsmeistaramótið í Oirschot, Hollandi árið 2023. Þorgeir Guðlaugsson verður yfirdómari og verður Susanne Braun honum til halds og traust sem varayfirdómari.
Stjórn FEIF skipar yfirdómara eftir að fá tillögur frá íþróttanefnd FEIF að minnsta kosti 10 mánuðum áður en heimsmeistaramótið hefst. Þeir sem hafa rétt til að tilnefna yfirdómara og varayfirdómara eru: aðildarlöndin, íþróttadómaranefndin, íþróttanefndin og stjórn FEIF.
Auk yfirdómara og varayfirdómara verður skipaður 12 manna hópur til að dæma heimsmeistaramótið. Allir dómarar verða að hafa verið með FEIF alþjóðleg íþróttadómararéttindi í að minnsta kosti eitt ár áður en þeir eru skipaðir. Þeir verða einnig að hafa dæmt að minnsta kosti fimm FEIF WorldRanking viðburði á einu ári fyrir skipun þeirra.
Dómararnir verða valdnir af sérstakri valnefnd þriggja manna, sem samanstendur af yfirdómara heimsmeistaramótsins, einum fulltrúa íþróttadómaranefndar FEIF og einum fulltrúa íþróttanefndar FEIF. Dómararnir verða valdir af lista yfir alla alþjóðlega íþróttadómara sem hafa FEIF leyfi og sem hafa lýst sig tiltæka valnefndinni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH