Jakob og Alur efstir eftir forkeppni
Þaulreyndir keppnishross eru mætt til leiks í slaktaumatöltskeppni Meistaradeildar í kvöld, bæði landsmótssigurvegarar, íslandsmeistarar og nafntogaðar töltmyllur. Áhorfendur voru því ekki sviknir af fallegum sýningum í kvöld.
Íslandsmeistararnir Jakob Svavar Sigurðsson og Alur frá Lundum voru með öyggið uppmálað, fengu 8,07 í lokaeinkunn og eru efstir inn í úrslit, rétt eins og í fyrra.
Sara Ástþórsdóttir og Díva frá Álfhólum ætla augljóslega að gera atlögu að öðrum sigri, fengu 7,83 í lokaeinkunn og eru í öðru sæti sem stendur.
Valdimar Bergstað gerði sér svo lítið fyrir og reið Tý frá Litla-Dal í þriðja sætið, skemmtileg innkoma hjá knapanum sem er að koma í fyrsta sinn fram í Meistaradeild í ár.
Í fyrra urðu Hulda og Sveigur hins vegar senuþjófarnir, Hulda hampaði þá bikarnum eftir að hafa unnið sig upp úr B-úrslitum. Hulda og Sveigur munu nú etja aftur kappi í B-úrslitum og spurningin er hvort þessar þrautreyndu kempur endurtaki leikinn.
Dómarar hafa verið missammála en slaktaumatöltskeppnin hefur þótt erfið grein að dæmi og misræmi allra jafna nokkuð meira en í öðrum greinum. Misræmi hefur verið frá 0,3 upp í 1,7.
Miðað við það sem á undan er gengið má búast við firnasterkum úrslitum.
- Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót Alur frá Lundum 8,07
- Sara Ástþórsdóttir Ganghestar / Málning Díva frá Álfhólum 7,83
- Valdimar Bergstað Ganghestar / Málning Týr frá Litla-Dal 7,40
- John Kristinn Sigurjónsson Hrímnir Tónn frá Melkoti 7,30
- Sigurður Sigurðarson Lýsi Gulltoppur frá Þjóðólfshaga 7,30
- Sylvía Sigurbjörnsdóttir Ganghestar / Málning Fura frá Enni 7,03
- Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Norður-Götur Sveigur frá Varmadal 7,03
- Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter / Ármót Svartnir frá Miðsitju 7,00
- Lena Zielinski Auðsholtshjáleiga Njála frá Velli II 6,93
- Viðar Ingólfsson Hrímnir Kamban frá Húsavík 6,93
- Eyvindur Mandal Hreggviðsson Auðsholtshjáleiga Gefjun frá Auðsholtshjáleigu 6,87
- Guðmundur Björgvinsson Top Reiter / Ármót Grýta frá Garðabæ 6,80
- Teitur Árnason Árbakki / Norður-Götur Kórall frá Lækjarbotnum 6,80
- Artemisia Bertus Hrímnir Kráka frá Syðra-Langholti 6,70
- Eyjólfur Þorsteinsson Lýsi Kraftur frá Efri-Þverá 6,57
- Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Smyrill frá Hrísum 6,53
- Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Stund frá Auðsholtshjáleigu 6,43
- Ólafur Ásgeirsson Spónn.is Hróðný frá Hvítanesi 6,37
- Elvar Þormarsson Spónn.is Gráða frá Hólavatni 6,20
- Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Jarl frá Mið-Fossum 6,17
- Ævar Örn Guðjónsson Spónn.is Máttur frá Austurkoti 5,63
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH