Kolbrún Sif og lið Hjarðartúns sigurvegarar í tölti
Efstu knapar í tölti. Kolbrún Sif Sindradóttir og Hallsteinn frá Hólum sigruðu keppinauta sína
Keppni í tölti T1 í Meistaradeild Ungmenna og Topreiter fór fram sunnudaginn 12.apríl í glæsilegri aðstöðu Sörlafélaga. Alls mættu til leiks 36 sterk pör og var stemningin góð. Skipulag var til fyrirmyndar, knapar létu ekki bíða eftir sér og sýndu fágaða reiðmennsku. Hestasjoppan styrkti Tölt og fengu efstu 3 sæti fóðurpoka frá þeim, og er þeim þakkað fyrir stuðninginn.
Eftir forkeppni leiddu þau Elva Rún Jónsdóttir og Goði frá Garðabæ með 7.30. Fast á hæla þeirra komu Kolbrún Sif Sindradóttir og Hallsteinn frá Hólum með einkunnina 7,27. í þriðja sæti eftir forkeppni komu þeir Ragnar Snær Viðarsson og Bylur frá Kvíarhóli með 7,13 í einkunn.
Í A-úrslitum var mikið jafnræði meðal knapa og var það ekki fyrr en eftir yfirferð sem úrslit urðu ljós. Það fór svo að Kolbrún Sif og Hallsteinn unnu með einkunnina 7,78. í öðru sæti komu þau Elva Rún og Goði með einkunnina 7,72 og í þriðja komu þeir Ragnar Snær og Bylur með einkunnina 7,61.
Niðurstöður A-úrslit
Kolbrún Sif Sindradóttir. – Hallsteinn frá Hólum 7,78 (Lið Helgatún/Hestaval)
Elva Rún Jónsdóttir – Goði frá Garðabæ – 7,72 ( Lið Hjarðartúns)
Ragnar Snær Viðarsson – Bylur frá Kvíarhóli 7,61 ( Lið Kastalabrekka)
Guðný Dís Jónsdóttir – Hraunar frá Vorsabæ 2 7,0 – ( Lið Hjarðartún)
Svandís Aitken Sævarsdóttir – Eik frá Stokkseyri – 6,94 ( Lið Helgatún/Hestavals)
Niðurstöður B- úrslit
Eva Kærnested – Logi frá Lerkiholti 7,78 ( Lið Miðás/Miklholt)
Lilja Rún Sigurjónsdóttir – Styrkur frá Skák 7,0 ( Lið Miðás/Miklholts)
Sara Dís Snorradóttir – Sæmar frá Stafholti ( 6,61 ( Lið Miðás/Miklholt)
Anika Hrund Ómarsdóttir – Sólmyrkva frá Álfhólum 6,56 ( Lið Holtsmúla)
Hildur María Jóhannesdóttir – Viðar frá Klauf – 6,39 ( Lið Brekka/Einhamar)
Mjótt var á munum í liðakeppninni eftir töltið en fór svo að lið Hjarðartúns var stigahæst með 84,5 stig , en aðeins munaði hálfu stigi á liðinu á eftir þeim, lið Miðás/Miklholt með 84.stig.

Lið Hjarðartúns var stigahæsta liðið í tölti
Niðurstaða liðakeppni í töltinu
Hjarðartún – 84,5 stig
Miðás/Miklholt – 84.stig
Helgatún/Hestaval – 81.stig
Kastalabrekka – 75.stig
Holtsmúli – 50 stig
Bobcat – 47,5 stig
Husky Iceland/Réttverk – 44,5 stig.
Hestvit/Lækjarbrekka – 39.stig
Armar/Ellert Skúlason – 32.stig
Grindjánar – 21.stig
Einhamar/Brekka – 0
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Gífurlega spennandi lokakvöld Meistaradeildar Líflands
Páll Bragi og lið Fornusanda sigruðu í 1.deild Hringdu
Rósa sigurvegari í gæðingaskeiði Samskipadeildar