Kynbótasýningu á Dalvík frestað vegna slæms veðurútlits
Ákveðið hefur verið að fresta kynbótasýningu sem vera átti á Dalvík dagana 18.-20. maí. Sýningin verður þess í stað haldin 25.-27. maí.
Ástæðan er slæm veðurspá fyrir þessa daga en útlit er fyrir snjókomu og frost. Hægt er að afskrá hross óski menn þess og verða sýningargjöld endurgreidd. Einnig væri mögulegt að bæta við nokkrum skráningum svo fremi að það rúmist á auglýstum sýningardögum. Afskráningar og skráningar þurfa að berast í síðasta lagi föstudaginn 20. maí. Best að þær berist á netfangið [email protected] Uppfærð hollaskrá verður svo birt á heimasíðu Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga í síðasta lagi mánudaginn 23. maí.
Kveðja
Búgarður-ráðgjafaþjónusta á Norðausturlandi
Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH