Léttleiki í upphafi og enda
Nýtt tölublað Eiðfaxa er nú komið út og er, eins og endranær, stútfullt af fróðlegu og skemmtilegu efni.
Meðal efnis er viðtal við franska tamningamanninn og reiðkennarann Michel Becker sem kallar sjálfan sig „hinn sífellt leitandi knapa“ og hefur m.a. tileinkað sér hugmyndafræði léttleikans og þjálfunaraðferðir Philippe Karl. Í framhaldi af viðtali við Michel Becker birtir Eiðfaxi myndasíðu þar sem Anton Níelsson hestaþjálfari og reiðkennari á hrossaræktarbúinu Feti sýnir vinnuaðferðir við hendi sem hann hefur tileinkað sér, vinnu sem skapa á léttleika, bæði í hreyfingum og fasi hestsins.
Í vefútgáfu blaðsins má ennfremur finna stutt myndbrot bak við skýringarmyndir af Antoni þar sem sýndar eru æfingar sem viðkomandi myndir fjalla um, lesendum til skemmtunar og fróðleiks.
Vefútgáfuna má nálgast hér.
Allir áskrifendur Eiðfaxa hafa rétt á fríum aðgangi að rafræna blaðinu.
Þeir áskrifendur sem hafa ekki enn opnað fyrir sinn aðgang að rafræna blaðinu geta gert það hér.
Þegar skráningu er lokið eru áskrifendur beðnir um að senda notendanafnið á netfangið ingibjö[email protected]. Þá mun hin heiðraða Ingibjörg opna fyrir aðgang að rafræna blaði Eiðfaxa.
Þriðja tölublaðið má einnig nálgast í helstu hestavöruverslunum og á bensínstöðvum N1.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH