Lið Lúlla Matt sigraði í fjórða sinn
Áskorendamót Riddara Norðursins var haldið sl. föstudag í reiðhöll Svaðastaða.
„Veðrið var rok og spursmál var hvort halda skildi mótið eður ei. Eitt lið afboðaði komu sína, Viðar á Björgum. En þá var það spurning með lið Lúlla Matt, sem kemur af svipuðum slóðum. En sama hvað gustar þá er alltaf meðvindur hjá Lúlla, svo hann kom með fullan bíl af fólki og fulla kerru af hestum.
Ræst var út lið vestan við Krókinn, og mættu á elleftu stundu Finnur Bessi og Anna, sem temja í reiðhöllinni á Blönduósi. Þau höfðu klára 3 hesta og gerð var undanþága á liðaskipan, fyrir það hvað þau voru mögnuð að bregðast skjótt við.
Mótið var sett með glæsilegu opnunaratriði Riddara Norðursins, fánareið prúðbúina manna sem endaði með söng Riddarakórsins.“
Þá gat mótið byrjað. Fyrsta keppnisgrein var fjórgangur. Þar mættu til leiks og fór keppnin þannig að:
1. Fyrir lið Hafsteinsstaða; Elín Rós Sverrisdóttir á Fannari frá Hafsteinsstöðum 6,93
2. Fyrir lið Lúlla Matt; Barbara Wensl á Hrafnfinn frá Sörlatungu 6,60
3. Fyrir lið Riddara Norðursins; Elín M Björnsdóttir á Stefni frá Narfastöðum 6,50
4. Fyrir lið Vatnsleysu; Arndís Brynjólfsdóttir á Heklu frá Vatnsleysu. 6,30
5. Fyrir lið Finnur4000; Anna Funni á Glaum frá Hafnafirði 6,20
Næst var keppt í fimmgangi, þar mættu, og fór keppni þannig:
1. Fyrir lið Finnur4000, Finnur Bessi á Gosa frá Staðartungu 6,48
2. Fyrir lið Lúlla Matt, Jolli Kóngur á Glóð frá Hólakoti 6,17
3. Fyrir lið Hafsteinsstaða, Lárus Sindri Lárusson á Bruna frá Akureyri 6,05
4. Fyrir lið Riddara Norðursins, Guðmundur Elíasson á Frigg frá Laugamýri 5,71
5. Fyrir lið Vatnsleysu, Gísli Gíslason á Flosa frá Syðri-Hofdölum 5,60
Endað var á skeiði,
1. Fyrir lið Lúlla Matt; Þór Jónsteinsson á Urð frá Skriðu 5,45 sek
2. Fyrir lið Finnur4000; Finnur Bessi Svavarsson á Gosa frá Staðartungu 5,47 sek
3. Fyrir lið Hafsteinsstaða; Skapti Steinsbjörnsson á Grágás frá Hafsteinsstöðum 5,75 sek
4. Fyrir lið Riddara Norðursins; Sveinn Brynjar Friðriksson á Glanna frá Varmalæk 5,92 sek
5. Fyrir lið Vatnsleysu; Ingólfur Helgason á Svölu frá Vatnsleysu 6,04 sek