Lokamótið í Meistaradeild Líflands og æskunnar

  • 11. apríl 2024
  • Fréttir
Fer fram sunnudaginn 14.apríl
Keppt verður í tveimur greinum; slaktaumatölti og gæðingaskeiði. Mótið hefst á skeiðinu kl. 10:00 á kynbótabrautinni fyrir neðan félagsheimilið. Forkeppni í slaktaumatölti hefst síðan kl. 13:00 í Lýsishöllinni.
Efnilegustu knapar landsins verða í eldlínunni í tveimur tæknilega krefjandi keppnisgreinum og mun dagurinn verða spennandi allt fram til síðustu skrefanna í A-úrslitum slaktaumatöltsins, því þá munu niðurstöður líka liggja fyrir í stigasöfnun knapa og liða eftir veturinn.
Sjoppa verður í reiðhöllinni og Búlluvagninn sömuleiðis á hádeginu milli 11:30-13:00.
Allir áhugasamir eru hvattir til að fá sér gott í gogginn í sjoppunni og styðja um leið við æskulýðsdeildina í Fáki.
Sjáumst í Lýsishöllinni!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar