Myndskeið af Jóhanni og Hnokka-
Með sigri sínum í töltkeppni Heimsmeistaramótsins hampaði Jóhann R. Skúlason tölthorninu góða í fimmta sinn á fjórða hestinum.
Jóhann ætlaði sér augljóslega ekkert annað en sigur og hafði sýnt í vetur hversu þeir félagar voru megnugir, höfðu þeir m.a. náð sögulegum árangri þegar þeir hlutu einkunnina 9,5 í úrslitum á töltmóti í Flyinge í Svíþjóð.
Á myndbandasíðu Eiðfaxa (HÉR) má nú nálgast myndskeið af þeim félögum í forkeppni töltsins á HM, þar sem þeir hlutu einkunnina 8,30, sem var næst hæsta einkunn á eftir Karl Zingsheim og gæðingnum hans Degi hinum hrímgráa. Jóhann og Hnokki buðu þeim hins vegar birginn í æsispennandi A-úrslitum, þar sem úrslit réðust ekki fyrr en eftir stórbrotna sýningar á yfirferðartölti, þar sem Jóhann og Hnokki hlutu 9,17 í einkunn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH