Nafnasamkeppni um fimikeppni

  • 1. desember 2022
  • Fréttir

akob Svavar Sigurðsson og Hálfmáni frá Steinsholti í Meistaradeild Líflands 2021 Mynd: Eiðfaxi

Um er að ræða nafn á grein sem hefur gengið undir nafninu “Gæðingafimi LH”

63. Landsþing Landssambands Hestamannafélaga samþykkti að stjórn LH skyldi efna til opinnar samkeppni um nafn á nýja keppnisgrein í regluverki LH.

Um er að ræða nafn á grein sem hefur gengið undir nafninu “Gæðingafimi LH”.

Stjórn LH var falið að safna inn tillögum að nafni á greinina til framtíðar og efnir til nafnasamkeppni um það.

Nafnasamkeppnin fer þannig fram að opið er fyrir að senda inn tillögur að nafni á fimikeppnina til Landssambandsins á netfangið [email protected] til miðnættis sunnudaginn 18. desember nk.

Starfshópur á vegum stjórnar LH tekur saman þær tilnefningar sem berast og setur í kjölfarið í gang opna kosningu á heimasíðu sambandsins á milli þriggja til fjögurra tillagna sem best þykja passa þessari nýju og spennandi keppnisgrein okkar.

Fimikeppnin er keppnisgrein sem reynir á alla þætti reiðmennskunnar, þjálni, mýkt, ganghæfni og sköpun. Hún er í senn krefjandi og skemmtileg auk þess að vera frábær mælistika á þjálfun og undirbúning hests og knapa.

Landssamband Hestamannafélaga hvetur skapandi hestamenn með brennandi áhuga á keppni, málfari og nöfnum að leggja höfuðið í bleyti og aðstoða við að finna fimikeppninni verðugt og gott nafn til framtíðar inni í regluverki sambandsins.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link