Námskeið í boði hjá Fáki
Fræðslunefnd Fáks auglýsir aftur námskeið í neyðarjárningu og undirbúningi fyrir gæðingakeppni:
Stefnir þú á Landsmót?
Fræðsunefnd Fáks auglýsir undirbúning fyrir gæðingakeppni, með umsögn leiðbeinanda og dómara fyrir 18 ára og eldri.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með sinn keppnishest og ríði prógrammið í gæðingakeppni . Þátttakendur fá leiðsögn um það sem vel er gert og það sem betur má fara. Dómari gefur þátttakanda einkunn og þeir fá skriflega umsögn. Í boði er að kaupa sér 1, 2 eða 3 skipti. Gert er ráð fyrir að hver þátttakandi fái 15 mínútur. Dagsetningar eru 10.maí kl. 17:00 -19:00, 11.maí kl.19:00-21:00 og 12.maí frá kl. 17:00-19:00.
Staðsetning: Hvammsvöllur.
Leiðbeinendur og dómarar eru:
Þann 10.maí verða Ragnar Hinriksson og Helga Classen.
Þann 11.maí verða Róbert Petersen og Ragnar Petersen.
Þann 12. maí verða Edda Rún Ragnarsdóttir og Helga Classen.
Þetta námskeið er eingöngu ætlað félagsmönnum Fáks 18. ára og eldri.
Verð fyrir hvert skipti kr. 2.000. ATH. Fákur styrkir verkefnið og því getum við boðið lækkað verð.
Skráning: Mánudaginn 9. maí frá kl. 19:00 – 20:00 í Reiðhöllinni og í síma 861-4041 og 898-1761.
Kveðja Fræðslunefnd Fáks
Stefnir þú á hestaferð?
Námskeið í neyðarjárningu
Fræðslunefnd Fáks mun bjóða upp á námskeið í neyðarjárningu. Eftir sýnikennslu og fyrirlestur leiðbeinanda þá munu nemendur læra að járna sjálfir eina löpp á sínum hesti.
Staðsetning kennslu er í Reiðhöllinni.
Dagsetning þriðjudaginn 17.maí frá kl. 19 – 22.
Leiðbeinandi er Þorgrímur Hallgrímsson.
Kveðja frá fræðslunefnd Fáks
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH