Margir hestar afskráðir
Forkeppnir á heimsbikarmótinu innanhús, World toelt, fara nú fram í Óðinsvéum. Einkunnir og niðurstöður má nálgast hér, en síðari hluti fjórgangs heldur áfram eftir augnablik.
Athygli vekur afskráningar í fjórgangi.
Margir voru orðnir spenntir að sjá Jóhann Skúlason á Mídasi frá Kaldbak en þeir eru afskráðir. Hann mætir hins vegar með Hrynjandadótturina Snugg fra Grundet hus.
Þá hefur Vignir Jónasson verið afskráður á tveimur hestum, Braga frá Kópavogi og Ivan frá Hammerby.
Jakob Svavar Sigurðsson hefur afkskráð Asa frá Lundum II úr fjórgangskeppninni en ætlar að spreyta sig á honum í stóðhestakeppninni síðar á mótinu.
Þá hefur Muni frá Kvistum fengið frí að þessu sinni en Anne Stine Haugen mætti á nýjum hesti, Kristal frá Jarðbrú, og er sem stendur í 3. sæti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH