Nýtt og endurbætt útlit á Stóðhestablaðinu
Stóðhestablað Eiðfaxa hefur fengið nýtt og endurbætt útlit.
Upplýsingar um dóm stóðhestanna er ítarlegra en áður og afkvæmahestar munu skipa sérstaka sess á heilsíðum fremst í blaðinu þar sem fram kemur einstaklingsdómur þeirra ásamt yfirliti yfir hæst dæmdu afkvæmi þeirra, hæst metnu afkvæmi í kynbótamati og liti afkvæma þeirra.
Stóðhesteigendur fá einnig aðgang að öflugasta vefmiðli landsins til að auglýsa tíma og staðsetningu sónarskoðana og öðru því sem við kemur upplýsingamiðlun til hryssueiganda.
Skráning er hér og í gegnum netfangið [email protected].
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV