Landsamband hestamanna Opið er fyrir umsóknir í Hæfileikamótun

  • 4. september 2024
  • Fréttir
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Hæfileikamótun veturinn 2024-2025

Hæfileikamótun LH er fyrir krakka á aldrinum 14-17 ára. Yfirþjálfari Hæfileikamótunar er Sigvaldi Lárus Guðmundsson reiðkennari.

Þróun Hæfileikamótunar LH hefur verið mikil undanfarin ár. Á þessu starfsári verður boðið upp á tvo hópa líkt og í fyrra. Þetta er gert til þess að veita sem flestum efnilegum knöpum tækifæri til þess að komast í umhverfi hæfileikamótunar, efla starfið og á sama tíma að veita hverjum knapa enn meiri aðstoð en áður.

Vetrarstarfið hefst á ferð norður að Háskólanum á Hólum í Hjaltadal þar sem nemendur fá innsýn í námið á Hólum, sýnikennslu og reiðkennslu hjá kennurum við skólann ásamt því að fá helgi til þess að kynnast og hrista saman hópinn.

Eftir áramót eru tvær vinnuhelgar í kennslu á eigin hestum undir umsjón yfirþjálfara ásamt því að hver knapi skilar tvisvar á tímabilinu myndbandi af sér með keppnishesti sínum á velli og fær endurgjöf og í framhaldinu aðstoð með þjálfun inn í mótin. Þetta verða vormótin annarsvegar og svo kringum Íslandsmót hinsvegar. Þar að auki taka iðkendur hæfileikamótunar þátt í viðburðum á vegum landsliðsins í hestaíþróttum.

Í hæfileikamótun eru ungir og efnilegir framtíðarknapar Íslands. Á liðnu keppnisári hafa knapar sem taka þátt í hæfileikamótun LH staðið framarlega í öllum greinum á stærstu mótum ársins og tölfræðin er afar skýr. Tilvist hæfileikamótunar er orðin að stórum þætti í afreksmálum Landssambands hestamannafélaga. Það er mjög mikilvægt að aðstoða unga afreksknapa við að verða betri þjálfarar og reiðmenn en einnig að gefa þeim tækifæri til að kynnast landsliðsumhverfinu og verða að flottum fyrirmyndum fyrir aðra.

Tekið er á móti umsóknum í hæfileikamótun LH 2024-2025 á vef LH.

Umsóknarfrestur er 15. september 2024

Sækja um í Hæfileikamótun

 

www.lhhestar.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar