Opið fyrir pantanir í grunnþjálfun
Hólaskóli hefur um árabil átt gott samstarf við ræktendur um allt land, um að senda skólanum hross til tamningar og þjálfunar. Verkefnin annast nemendur á 2. ári við hestafræðideild, undir handleiðslu reiðkennara skólans.
Haustönn 2015 er skipt upp í tvö tímabil, og stendur hið fyrra frá 28. ágúst til 17. október, en hið síðarafrá 19. október til 11. desember.
Nú er leitað eftir hrossum í grunnþjálfun og í þjálfun, á seinna tímabili haustannar, 19. október til 11. desember 2015.
Grunnþjálfun: Í grunnþjálfun er megináhersla lögð að kenna og bæta svörun ábendinga, kenna léttar hliðargangsæfingar sem og samspil ábendinga. Gangsetning er undirbúin og hafin ef hesturinn er tilbúinn. Unnið er við hendi og hestinum kennt að vinna við langan taum. Teymingar á hesti úti sem og þjálfun í reið á víðavangi, og uppbygging þreks, jafnvægis og kjarks eru áherslur í þjálfuninni.
Forkröfur: Grunnþjálfunin er framhald frumtamningar. Trippin skulu vera vel reiðfær utan dyra og teymast vel með manni.
Til að tíminn nýtist sem best þurfa trippin að koma járnuð og í nokkurri þjálfun.
Ákjósanlegt er að búið verði að heyja þau.
Smellið hér, til að panta fyrir hross í grunnþjálfun.
Þjálfun: Fyrir tamin hross á 5. -12. vetri af öllu tagi en þó eru ekki tekin gölluð hross eða hættuleg. Viðfangsefni námskeiðsins er alhliða þjálfun reiðhests með áherslu á bætta svörun ábendinga, jafnvægi, hreyfingar og rými á öllum gangtegundum.
Forkröfur: Hrossin þurfa að vera heilbrigð og laus við galla, svo sem slægð, hrekki, húslesti eða áberandi viðkvæmni eða kaldlyndi. Hrossin þurfa að koma járnuð og vera í a.m.k. léttri þjálfun.
Smellið hér, til að panta fyrir hross í þjálfun.
Kostnaður – fyrir allt viðkomandi tímabil (ber ekki virðisaukaskatt), er kr.75.000. Innifalið: Allt uppihald, auk járninga (ef við á) og ormalyfsgjafar. Þeim sem hafa hug á að koma að hrossum í þjálfunina, er bent á að leggja inn pöntun sem allra fyrst.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH