Ósk að komast í landsliðið
Ósk frá Þingnesi varð efst í slaktaumatölti Meistara á Reykjavíkurmóti Fáks í hestaíþróttum. Bar hún þar ásamt knapa sínum Eyjólfi Þorsteinssyni sigurorð af Íslandsmeistaranum í greininni, Jakobi Sigurðssyni á Al frá Lundum II. Eyjólfur er jafnframt annar eigandi hryssunnar ásamt föður sínum Þorsteini Eyjólfssyni, sem er ræktandi.
Réttara væri þó að segja að þeir feðgar séu fyrrverandi eigendur, því þeir seldu Ósk fyrr í vetur. Kaupandi er Mara Daniella Staubli í Sviss, sem á nokkra mjög góða íslenska stóðhesta, þar á meðal Hóf frá Varmalæk.
Ósk er fyrstu verðlauna hryssa (8,04). Hún er undan Ógát frá Þingnesi, sem er undan Hrafni frá Hrafnhólum. Faðir Óskar er Sveinn-Hervar frá Þúfu. Hún og Eyjólfur eru nú efst á WorldRanking lista FEIF í slaktaumatölti. Eyjólfur stefnir á að komast með Ós í landslið Ísland fyrir HM2011 í Austurríki.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH