1. deildin í hestaíþróttum Öskufljót og flink skeiðhross í 1.deild Hringdu

  • 17. apríl 2026
  • Fréttir
Allt undir í 1.deild Hringdu á lokamótinu

Síðasta mótið í 1.deild Hringdu í hestaíþróttum fer fram laugardaginn 18. apríl á mótssvæði Sörla í Hafnarfirði og hefst mótið klukkan 10:00. Keppt verður í tveimur skeiðgreinum þ.e. gæðinga- og 100 metra skeiði. Mótið er keyrt samhliða skeiðmóti Samskipadeildinni – Áhugamannadeildar Spretts.

Mótið er að sjálfsögðu í beinni útsendingu á EiðfaxaTV og verður dregið í afmælisleik Ástundar og EiðfaxaTV.

Gæðingaskeið

Á þátttökulistanum í gæðingaskeiði eru mörg pör sem hafa gert það gott í greininni. Páll Bragi Hólmarsson og Snjall frá Austurkoti eru ofarlega á stöðulista síðasta ár, þeir hlutu hæst einkunnina 7,96 á WR Íþróttamóti Geysis. Þá er  Sigvaldi Lárus Guðmundsson og Hildur frá Feti skráð til leiks en þau eru ríkjandi sigurvegarar í þessari grein í 1.deildinni, hlutu 7,63 í einkunn á síðasta tímabili. Ingibergur Árnason og Flótti frá Meiri-Tungu voru þá í þriðja sæti með 7,33 í einkunn. Þá hafa þau Jóhann Kr. Ragnarsson og Þórvör frá Lækjarbotnum verið á meðal allra stekustu para í gæðingaskeiði undanfarinn ár og verið í toppbaráttu á Íslands og Landsmótum. Þá hefur Heiða frá Skák, sem nú er setinn af Þórdísu Ingu Pálsdóttur, hefur gert það ákaflega gott í gæðingaskeiði m.a. með Eyrúnu Ýr Pálsdóttur sem knapa. Sama má segja um Bresa frá Efri-Hrepp sem Birna Olivia keppir á. Fleiri hesta og eða pör sem hafa náð góðum árangri mætti telja upp en spennandi verður að sjá hvernig knöpum tekst til í þessari krefjandi keppnisgrein.

Ráslisti
Friðdóra Friðriksdóttir Toppur frá Sæfelli
Siguroddur Pétursson Tign frá Hrauni
Ingibergur Árnason Flótti frá Meiri-Tungu 1
Þórdís Inga Pálsdóttir Heiða frá Skák
Rakel Katrín Sigurhansdóttir Blakkur frá Traðarholti
Hermann Arason Þota frá Vindási
Ólafur Þórisson Assa frá Árheimum
Haukur Tryggvason Lóa frá Ásbrú
Helgi Þór Guðjónsson Dimma frá Syðri-Reykjum 3
Hafþór Hreiðar Birgisson Möndull frá Halakoti
Katla Sif Snorradóttir Gimsteinn frá Víðinesi 1
Ólöf Rún Guðmundsdóttir Hraundís frá Selfossi
Haukur Bjarnason Þórfinnur frá Skáney
Birna Olivia Ödqvist Bresi frá Efri-Hrepp
Hlynur Guðmundsson Kraftur frá Svanavatni
Reynir Örn Pálmason Lína frá Miklaholtshelli
Benedikt Ólafsson Tobías frá Svarfholti
Jóhann Kr. Ragnarsson Þórvör frá Lækjarbotnum
Frederica Fagerlund Salómon frá Efra-Núpi
Anna Valdimarsdóttir Sólon frá Bræðraá
Ævar Örn Guðjónsson Elja frá Óðinstorgi
Páll Bragi Hólmarsson Snjall frá Austurkoti
Sigvaldi Lárus Guðmundsson Hildur frá Feti
Thelma Dögg Tómasdóttir Sirkus frá Torfunesi
100 metra skeið

100 metra skeið er ákfalega skemmtileg keppnisgrein þar sem eingöngu tímataka sker úr um sigurvegara og verða knapar því að tefla djarft. Ingibergur Árnason og Sólveig eru frábært keppnispar og var þeirra besti tími á síðasta ári 7,47 sekúndur. Friðdóra Friðriksdóttir er á Flugsvinn frá Ytra-Dalsgerði, en hennar besti tími á síðasta ári var 7,64 sekúndur. Þórdís Inga Pálsdóttir er á Friðsemd frá Kópavogi sem er öskufljót og hefur farið á undir 7,50 sekúndum í 100 metra skeiði. Benedikt Ólafsson og Vonardís frá Ólafshaga voru ofarlega í 100 metra skeiði á þessu sama móti árið 2025 á 7,83 sekúndum. Katla Sif Snorradóttir teflir fram Djarfi frá Litla-Hofi, Sara Dís systir Kötlu hefur gert það gott á honum og var þeirra besti tími 7,70 árið 2025. Páll Bragi og Snjall frá Austurkoti gerðu það mjög gott í 100 metra skeiði á síðasta ári og unnu þessa grein á Suðurlandsmóti árið 2025 á tímanum 7,61. Eins og lesa má úr þessum upplýsingum eru allar líkur á að við fáum að sjá snarpa og fallega skeiðspretti í 100 metra skeiði 1.deildar Hringdu.

Ráslisti í 100 metra skeiði
Sunna Sigríður Guðmundsdóttir Flæðir frá Stykkishólmi
Friðdóra Friðriksdóttir Flugsvinn frá Ytra-Dalsgerði
Ingibergur Árnason Sólveig frá Kirkjubæ
Haukur Tryggvason Lóa frá Ásbrú
Ólafur Þórisson Edda frá Túnprýði
Eysteinn Tjörvi Kristinsson Gná frá Borgarnesi
Birna Olivia Ödqvist Salka frá Fákshólum
Þórdís Inga Pálsdóttir Friðsemd frá Kópavogi
Rakel Katrín Sigurhansdóttir Blakkur frá Traðarholti
Thelma Dögg Tómasdóttir Von frá Ási 1
Hulda Sveinbjörnsdóttir Amalía frá Þjóðólfshaga 1
Anna Valdimarsdóttir Jökull frá Stóru-Ásgeirsá
Katla Sif Snorradóttir Djarfur frá Litla-Hofi
Hlynur Guðmundsson Stólpi frá Ási 2
Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir Klaustri frá Hraunbæ
Frederica Fagerlund Salómon frá Efra-Núpi
Jóhann Kr. Ragnarsson Þórvör frá Lækjarbotnum
Vilborg Smáradóttir Klókur frá Dallandi
Reynir Örn Pálmason Lína frá Miklaholtshelli
Benedikt Ólafsson Vonardís frá Ólafshaga
Páll Bragi Hólmarsson Snjall frá Austurkoti
Helgi Þór Guðjónsson Kolbeinn frá Hrafnsholti
Sigvaldi Lárus Guðmundsson Hildur frá Feti
Þorvaldur Logi Einarsson Lukka frá Syðra-Langholti

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link