Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum Reynir og lið Hergils/Exporthesta sigurvegarar Vesturlandsdeildar

  • 16. apríl 2026
  • Fréttir

Sigurlið Hergils/Exporhesta

Að lokinni Vesturlandsdeild

Þriðjudaginn 14 apríl fór fram síðasta keppnin í Vesturlandsdeildinni á þessum vetri. Keppt var í tveimur greinum, tölti T1 og skeiði í gegn um Faxaborg. Tvær greinar af fimm og mikið I húfi, enda mörg stig í boði, bæði fyrir liðin og einstaklinga. 30 knapar voru skráðir til leiks í tölti T1 og 26 í skeiðinu.

Í tilkynningu mótshaldar þótti keppnin fara vel fram í hvívetna og sáust mörg góð tilþrif, bæði á tölti og á skeiði.

Úrslitin í tölti að loknum A úrslitum voru eftirfarandi:
Reynir Örn Pálmason og Alfa f. Margrétarhofi 6,94 – Hergill/Exporthestar
Benjamín Sandur Ingólfsson og Áki f. Hurðarbaki 6,72 – villiköttur fyrir Berg
Herdís Lilja Björnsdóttir og Drottning f. Íbishóli 6,67 – Mýrdalur
Siguroddur Pétursson Sól f. Söðulsholti 6,67 – Kidka/Söðulsholt/Hestakofinn
Þorgeir Ólafsson og Kór f. Kálfholti 2 2,0 – Hestaland

Stigahæsta liðið í tölti T1 vqr lið Hergils/Exporthesta með 49 stig – liðsstjóri Lárus Ástmar Hannesson.

Í skeiði í gegn um Faxaborg voru niðurstöður þessar eftir æsispennandi keppni:
Þorvaldur Logi Einarsson og Lukka f. Syðra-Langholti 4,86 sek. – villiköttur fyrir Kidka/Söðulsholt/Hestakofinn.
Sigurður Sigurðarson og Tromma f. Skúfslæk 4,92 sek. – villiköttur f. Hergil/Exporthesta
Þorgils Kári Sigurðsson og Flugdís f. Kolsholti 3 4,99 sek. – Berg
Guðmar Freyr Magnússonog Gljásteinn f. Íbishóli 5,05 sek. – Berg
Þorgeir Ólafsson og Grunur f. Lækjarbrekku 2 5,10 sek. – Hestaland

Stigahæsta liðið í skeiðinu var Kidka/Söðulsholt/Hestaland með 46 stig – liðsstjóri Inga Dís Víkingsdóttir.

Stigahæsti einstaklingurinn að afloknum fimm greinum var Reynir Örn Pálmason með 37 stig. Næstir komu Þorgeir Ólafsson með 34 stig og Siguroddur Pétursson með 27,5 stig.

Reynir Örn Pálmason var stigahæsti knapi Vesturlandsdeildar

Stigahæsta lið Vesturlandsdeildarinnar í vetur var lið Hergils/Exporthesta með 209,5 stig – liðsstjóri Lárus Ástmar Hannesson. Í öðru sæti var lið Hestalands með 205 stig – liðsstjóri Guðmar Þór Pétursson og í því þriðja var lið Bergs með 201, 5 stig – liðsstjóri Jón Bjarni Þorvarðarson.

Stjórnin þakkar öllum þeim keppendum sem tóku þátt í keppnum deildarinnar í vetur fyrir þátttökuna og þakkar sérstaklega öllum þeim sem komu að margvíslegum störfum fyrir deildina meðan á mótum stóð.

Deildin naut þess að hafa á að skipa öflugu og samhentu liði sjálfboðaliða sem með framlagi sínu sáu til þess að hlutir gengu vel og örugglega fyrir sig.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link