Síðsumarsýning á Melgerðismelum

  • 4. ágúst 2010
  • Fréttir
Síðsumarsýning á Melgerðismelum

Síðsumarsýning verður haldin á Náttfaravellinum á Melgerðismelum 18. – 20. ágúst. Skráning í Búgarði, í síma 460-4477 eða á netfangið [email protected]. Tekið verður við skráningum dagana 11. – 13. júlí.

 
Skráningargjald skal greiða í síðasta lagi 13. júlí.   Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu. Sýningargjald er kr.14.500 fyrir fulldæmt hross en kr. 10.000 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm eða hæfileikdóm. Hægt er að greiða í Búgarði. Einnig má leggja inn á reikning 302-13-200861, kt. 490169-1729, og senda kvittun á netfangið [email protected]  skýring: nafn á hrossi. Auglýst með fyrirvara um næga þátttöku. Munið að kynna ykkur reglur um einstaklingsmerkingar, járningar, blóðsýni, dna-sýni og spattmyndir.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link