Siguroddur sigraði fjórgang (V2) í meistaraflokki
Úrslit í fjórgangi (V2) í meistaraflokki voru nú að klárast rétt í þessu. Það var Siguroddur Pétursson sem stóð efstur á Eyju frá Hrísdal með 7,17 í einkunn, Lena Zielinski og Rjúpa frá Þjórsárbakka urðu í öðru sæti með einkunnina 6,73 og í þriðja sæti varð Reykjavíkurmeistarinn í þessari grein Hrefna María Ómarsdóttir á Evu frá Álfhólum með 6,60 í einkunn.
A-úrslit fjórgangur Meistara (V2)
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Siguroddur Pétursson / Eyja frá Hrísdal | 7,17 |
| 2 | Lena Zielinski / Rjúpa frá Þjórsárbakka | 6,73 |
| 3 | Hrefna María Ómarsdóttir / Eva frá Álfhólum | 6,60 |
| 4 | Ásmundur Ernir Snorrason / Kristall frá Strandarhöfði | 6,53 |
| 5 | Sigurður Sigurðarson / Narfi frá Áskoti | 6,47 |
| 6 | Eva Dyröy / Kristall frá Hákoti | 6,13 |
| 7 | Kári Steinsson / Logi frá Lerkiholti | 6,10 |
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Styttu haustið með EiðfaxaTV