Skeifurnar komnar í verslanir
Nú eru 22×6 mm afturfótaskeifur eru komnar í hillur helstu hestavöruverslana.
Skeifuframleiðandinn Kerckhaert hefur lagt nótt við dag við að koma á markaðinn, 22 mm. afturfótaskeifur, sem kynbótaknapar eru margir að bíða eftir undir hross sem til að stendur að sýna.
Framfóta- og afturfótaskeifur verða að vera jafn breiðar. Í einhvern tíma hefur verið boðið upp á 22×8 mm. framfótaskeifur en 6mm afturfótaskeifur hafa eingöngu verið til 20 mm. breiðar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH