Skráning á kynbótasýningu í Hafnafirði stendur nú yfir
Í dag og á morgun er tekið við skráningum á kynbótasýningu sem fram fer að Sörlastöðum í Hafnafirði 23. – 27. maí nk. Tekið við skráningum í síma 480-1800.
„Sýningargjald á hvert hross er 15.000 kr sem er hækkun um 500 kr á milli ára og rennur sú hækkun öll til Bændasamtaka Íslands. Ef hross er einvörðungu skráð í byggingardóm eða hæfileikadóm er sýningargjaldið 10.500 kr. Það skal hins vegar skýrt tekið fram að nauðsynlegt er að geta þess um leið og hrossið er skráð að það eigi einungis að mæta í byggingardóm eða hæfileikadóm, ef það er ekki gert er litið svo á að það eigi að fara í fullnaðardóm. Hafi greiðsla ekki borist í síðasta lagi í lok síðasta skráningardags er viðkomandi hross ekki skráð í mót. Sýningargjöld er hægt að greiða á skrifstofu Búnaðarsambandsins að Austurvegi 1 á Selfossi eða inn á reikning nr. 0152-26-1618, kt: 490169-6609. Ef greitt er í banka er mikilvægt að biðja bankann um að faxa strax greiðslukvittun til Búnaðarsambandsins, faxnúmerið er 480-1818. Mjög brýnt er að merkja greiðslu með númeri og nafni hrossins. Ef greitt er í gegnum netbanka vinsamlegast sendið greiðslukvittun á netfangið [email protected] . Hægt er að greiða sýningargjöld með kreditkorti. Endurgreiðsla á sýningargjöldum kemur aðeins til greina ef látið er vita um forföll áður en viðkomandi sýning hefst. Ekki er um fulla endurgreiðslu að ræða heldur einungis 10.000 kr fyrir hross sem hefur verið skráð í fullnaðardóm en 6.000 kr fyrir þau hross sem hafa einungis verið skráð í byggingar eða hæfileikadóm.
Rétt er að minna á eftirfarandi:
- Öll hross sem koma til kynbótadóms skulu vera grunnskráð í WorldFeng og einstaklingsmerkt.
- Allir stóðhestar sem koma til dóms skulu vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra, s.s. þess er krafist að allir stóðhestar hafi sannað ætterni.
- Allir stóðhestar 5 vetra og eldri sem koma til dóms þurfa að skila inn vottorði um að úr þeim hafi verið tekið blóðsýni. Ekki þarf að framvísa vottorði fyrir hesta sem þegar liggur fyrir í WF að búið er að taka blóð úr.
- Röntgenmynda skal hækla stóðhesta. Röntgenmyndirnar er heimilt að taka af hestinum á því ári sem þeir verða fimm vetra. Hestur hlýtur ekki dóm nema myndataka hafi farið fram og niðurstöður liggi fyrir í Worldfeng.
- Hófar mega ekki vera lengri en 9,0 cm. Undantekningar frá þessari reglu má gera þegar hæð á herðar mælist 137-144 cm, mælt með stangarmáli, en þá má hóflengd vera allt að 9,5 cm og ef hæðin er 145 cm eða meira má hóflengdin vera allt að 10,0 cm. Ekki má muna meira en 2 cm á lengd fram- og afturhófa.
- Hámarksþykkt skeifna er 8 mm og hámarksbreidd 23 mm. Sama breidd skal vera á fram- og afturfótaskeifum en mest má muna 2mm í þykkt. Skeifurnar skulu vera samstæðar og úr samskonar efni.
Munið að láta taka DNA-sýni, blóðsýni og röntgenmynda með góðum fyrirvara fyrir sýningar,“ segir á heimasíðu Búnaðarsambandi Suðurlands.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH