Skráningarfrestur að renna út fyrir Íslandsmótið í gæðingalist

Keppt verður í einum styrkleikaflokki í yngri flokkum en tveimur styrkleikaflokkum í fullorðinsflokki.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
- Barnaflokkur – stig 2
- Unglingaflokkur – stig 2
- Ungmennaflokkur – stig 2
- Fullorðinsflokkur (1.flokkur) – stig 2 (sýningargrein)
- Fullorðinsflokkur (meistaraflokkur) – stig 3
Íslandsmeistari verður krýndur í öllum flokkum, nema 1.flokk fullorðinna sem telst sem sýningargrein.
Keppni fer fram eftir reglugerð LH um gæðingalist. Knapar eru hvattir til að taka dagana frá og ljúka innanhúss keppnistímabilinu á Íslandsmóti í gæðingalist.
Fyrirspurnir má senda á sprettur@sprettur.is – Skráning fer fram á sportfengur.com, skráning stendur yfir 14.apríl til og með 22.apríl nk. Skráningagjöld eru 13.000kr fyrir yngri flokka og 15.000kr fyrir fullorðinsflokka.