Skýr efstur reynslumikilla afkvæmahesta

  • 3. nóvember 2023
  • Fréttir
Afhending Sleipnisbikarsins á Landssýningu kynbótahrossa sem fram fór á Rangárbökkum í sumar. Handhafar Sleipnisbikarins eru eigendur Skýs frá Skálakoti. þeir Guðmundur J. Viðarsson og Jakob Svavar Sigurðsson. F.v. Jakob Svavar Sigurðsson, Guðmundur J. Viðarsson, Gunnar Þorgeirsson formaður Bændasamtaka Íslands og Sveinn Steinarsson formaður Félags Hrossabænda. Ljósmyndari: Louisa Hackl

Skýr hlaut Sleipnisbikarinn eftirsótta árið 2020 mynd: Louisa Hackl

Grúskað í kynbótamatinu

Nýr kynbótamatsútreikningur birtist í Worldfeng nú um miðjan október. Fjöldi alþjóðlegra kynbótadóma (fullnaðardóma) sem lágu til grundvallar útreikningnum að þessu sinnu var 36.160. Fyrir forvitna hestaspekúlanta er gaman að skoða nýja kynbótamatsútreikninga og spá í spilin.

Nú beinum við sjónum okkar að þeim hestum sem eiga 50 eða fleiri dæmd afkvæmi og eru með 118 eða meira í aðaleinkunn kynbótamats.

Þessir stóðhestar ná því allir lágmörkum til heiðursverðlauna og hafa sumir þeirra hlotið verðlaun sem slíkir að undanskildum Arion frá Eystra-Fróðholti, sem var felldur árið 2018 í kjölfar slyss og þeim Vita frá Kagaðarhóli, Konsert frá Hofi og Ölnir frá Akranesi sem nú hljóta heiðursverðlaun. Þeir eru staðsettur erlendis og ætti samkvæmt samþættum reglum aðildarlanda FEIF að fá afkvæmaorð í Worldfeng.

Flest dæmd afkvæmi af þessum hestum á Spuni frá Vesturkoti alls 187 með fullnaðardóm. Fjórir af þessum stóðhestum hafa verið fluttir úr landi en það eru þeir Kiljan frá Steinnesi, Konsert frá Hofi, Ölnir frá Akranesi og Viti frá Kagaðarhóli.

Þrír af þessum hestum eru fallnir frá en það eru auk Arions þeir Óskasteinn frá Íbishóli og Loki frá Selfossi.

Skýr frá Skálakoti stendur efstur þessarra hesta með 135 stig í aðaleinkunn og 124 dæmd afkvæmi en hann hlaut Sleipnisbikarinn eftirsótta árið 2020 og heldur áfram að bæta rósum í hnappagatið.

 

Nafn Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn Öryggi Fj. afkv. Með fullnaðardóm
Skýr frá Skálakoti 135 128 135 98% 124
Spuni frá Vesturkoti 115 128 130 99% 187
Kiljan frá Steinnesi 116 126 128 97% 91
Konsert frá Hofi 125 121 127 98% 101
Jarl frá Árbæjarhjáleigu 108 125 125 96% 53
Trymbill frá Stóra-Ási 110 123 124 96% 60
Hrannar frá Flugumýri II 108 122 122 97% 91
Óskasteinn frá Íbishóli 101 124 122 97% 75
Sjóður frá Kirkjubæ 112 121 122 96% 60
Arion frá Eystra-Fróðholti 109 120 121 97% 93
Ölnir frá Akranesi 122 114 119 97% 69
Loki frá Selfossi 107 118 118 97% 71
Viti frá Kagaðarhóli 111 117 118 96% 55

 

Gott er að hafa í huga þegar kynbótamatið er skoðað að þetta er spá um kynbótagildi hrossa og því þarft að hafa öryggið til hliðsjónar því eftir því sem öryggið er meira því hærra verður forspárgildi kynbótamatsins. Allir hafa þessir hestar 96% öryggi eða meira í kynbótamatinu.

Nánar má lesa um kynbótamat og erfðaframför í íslenska hrossastofninum með því að smella hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar