Tamningameistarar eða ekki
Einar Öder Magnússon er einn eftirsóttasti reiðkennarinn í Íslandshestaheiminum og margverðlaunaður reiðmaður. Hann segir skoðun sína í Hestablaðinu.
Aðeins fimm Tamningameistarar eru í Félagi tamningamanna: Reynir Aðalsteinsson, Benedikt Líndal, Eyjólfur Ísólfsson, Sigurbjörn Bárðarson og Þórarinn Eymundsson. Fjórir fyrstnefndu tóku prófið í kringum 1980. Í meira en 20 ár sótti enginn um að fá að taka Meistarapróf.
Það var ekki fyrr en liðið var á 21. öldina að Einar Öder Magnússon og Atli Guðmundsson riðu á vaðið að nýju og brutu ísinn. Þeir féllu báðir. Einnig Mette Mannseth, sem tók prófið ásamt Þórarni Eymundssyni nokkru síðar.
Mörgum finnst ekki eðlilegt að 40 ára fagfélag eigi ekki nema fimm meistara: Hvers vegna eru knapar og reiðkennarar svo tregir til að taka prófið? Af hverju falla okkar fremstu reiðmenn á reiðprófinu? Er eðlilegt og réttlátt að margverðlaunaðir knapar og þrautþjálfaðir reiðkennarar þurfi að taka sérstakt meistarapróf þegar langt er liðið á ferilinn?
Fjallað er um málið í Hestablaðinu, sem kemur út í dag. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511-6622. Áskrifendur fá Stóðhestablað Hestablaðsins frítt í kaupbæti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH