Meistaradeild KS í hestaíþróttum Thelma Dögg sigrar töltkeppnina í Meistaradeild KS

  • 17. apríl 2026
  • Fréttir
Framundan keppni í flugskeiði og sigurvegarar verða krýndir

Lokamótið í Meistaradeild KS er nú í fullum gangi í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Spennan er mikil í bæði einstaklings- og liðakeppni og ráðast leikar í flugskeiði í gegnum höllina sem er við það að hefjast. Í einstaklingskeppninni er Mette nú í fyrsta sæti með 33 stig, Vera í öðru sæti með 30 stig og Þórarinn í því þriðja með 28 stig.

Í töltkeppninni var það Thelma Dögg Tómasdóttir sem leiddi að lokinni forkeppni með 7,23 í einkunn, í öðru sæti var Matthías Sigurðsson á Tuma frá Jarðbrú með 7,20 og í því þriðja Þorsteinn Björn Einarsson á Hringaná frá Hofi á Höfðaströnd með 7,13. Til úrslita riðu einni þau Mette Mannset á Grímari frá Þúfum sem hlaut 6,97 í forkeppni og Þórarinn Eymundsson á Náttfara frá Varmalæk með 6,93, þau tvö eru í harðri keppni í einstaklingsbaráttu og eru líkleg til sigurs en þess til viðbótar á Vera Evi Schneiderchen ennþá von á því að sigra en hún hefur leitt einstaklingskeppnina frá fyrsta móti.

Í A-úrslitum breyttist röð knapanna ekki og fór svo að Themla Dögg vann með 7,83 í úrslitum.

Stigahæsta liðið í tölti var lið Hrímnis/Hestkletts

Niðurstöður úr tölti
Tölt T1
Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Thelma Dögg Tómasdóttir Bóel frá Húsavík 7,23
2 Matthías Sigurðsson Tumi frá Jarðbrú 7,20
3 Þorsteinn Björn Einarsson Hringaná frá Hofi á Höfðaströnd 7,13
4 Mette Mannseth Grímar frá Þúfum 6,97
5 Þórarinn Eymundsson Náttfari frá Varmalæk 6,93
6 Elvar Einarsson Muni frá Syðra-Skörðugili 6,90
7 Ívar Örn Guðjónsson Dofri frá Sauðárkróki 6,83
8-10 Herdís Björg Jóhannsdóttir Svörður frá Vöðlum 6,77
8-10 Barbara Wenzl Loftur frá Kálfsstöðum 6,77
8-10 Guðmar Freyr Magnússon Snerpa frá Hólmum 6,77
11 Þórey Þula Helgadóttir Hrafna frá Hvammi I 6,73
12-13 Vera Evi Schneiderchen Feykir frá Selfossi 6,63
12-13 Björgvin Helgason Kóngur frá Gunnarsstöðum 6,63
14 Erlingur Ingvarsson Dimmalimm frá Hrísaskógum 6,60
15 Björg Ingólfsdóttir Hákon frá Vatnsleysu 6,57
16 Þorsteinn Björnsson Ugla frá Hólum 6,50
17-18 Kristófer Darri Sigurðsson Ósk frá Narfastöðum 6,43
17-18 Egill Már Þórsson Blæja frá Króksstöðum 6,43
19-20 Magnús Bragi Magnússon Jósteinn frá Íbishóli 6,40
19-20 Katrín Ösp Bergsdóttir Eldur frá Lundi 6,40
21 Elvar Logi Friðriksson Teningur frá Víðivöllum fremri 6,37
22 Julian Veith Fáni frá Sperðli 6,30
23-24 Sigurður Steingrímsson Rún frá Koltursey 6,23
23-24 Karítas G. Thoroddsen Tenór frá Miðhúsum 6,23
25 Sigurður Heiðar Birgisson Fagri frá Skeiðvöllum 6,20
26 Unnur Sigurpálsdóttir Þröstur frá Kolsholti 2 6,13
27 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Kolgríma frá Morastöðum 5,77
28 Agnar Þór Magnússon Birta frá Íbishóli 5,57
B úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
6-7 Elvar Einarsson Muni frá Syðra-Skörðugili 7,28
6-7 Ívar Örn Guðjónsson Dofri frá Sauðárkróki 7,28
8 Barbara Wenzl Loftur frá Kálfsstöðum 7,11
9 Herdís Björg Jóhannsdóttir Svörður frá Vöðlum 7,00
10 Guðmar Freyr Magnússon Snerpa frá Hólmum 6,72
A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Thelma Dögg Tómasdóttir Bóel frá Húsavík 7,83
2 Matthías Sigurðsson Tumi frá Jarðbrú 7,78
3 Þorsteinn Björn Einarsson Hringaná frá Hofi á Höfðaströnd 7,72
4 Þórarinn Eymundsson Náttfari frá Varmalæk 7,56
5 Mette Mannseth Grímar frá Þúfum 7,44

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link