Þjálfun alhliða hestsins

  • 17. janúar 2016
  • Fréttir
Áttu alhliða hest og langar að ná betri tökum á honum?

„Þá máttu ekki missa af einstöku tækifæri til að læra af tvöföldum heimsmeistara í fimmgangi, Sigurði Vigni Matthíassyni. Siggi verður með fróðlegan og hnitmiðaðan fyrirlestur þar sem hann fer yfir helstu atriði sem þarf að hafa í huga við þjálfun alhliða hestsins. Einnig seilist hann í fjársjóðskistuna sína og ljóstrar upp leyndarmálunum við að gera góðan hest að gæðingi, hvort sem hann á að verða reiðhestur eða keppnishestur. Í framhaldi býður hann upp á tvo einkatíma þar sem farið verður yfir styrkleika og veikleika hvers hest (og knapa) og leggur línurnar um áframhaldandi þjálfun.

Siggi verður í Guðmundarstofu nk. þriðjudagskvöld kl. 19:30 með sinn fyrirlestur og svarar svo í framhaldi fyrirspurnum frá fróðleiksþyrstum hestamönnum.“

Frítt inn, allir velkomnir og léttar veitingar í boði fræðslunefndar Fáks.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link