Landsmót Þráinn hlaut Sleipnisbikarinn

  • 14. júlí 2026
  • Fréttir

Þórarinn Eymundsson situr Þráinn og við hlið hans eru ræktendur, eigendur, Frú Halla Tómasdóttir Forseti Íslands, Ólafur Þórisson formaður deildar hrossabænda og Trausti Hjálmarsson formaður Bændasamtaka Íslands.

Afkvæmaorð heiðursverðlauna hestanna á Landsmóti

Tveir hestar hlutu heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á Landsmótinu, Þráinn frá Flagbjarnarholti og Adrían frá Garðshorni á Þelamörk.

Sleipnisbikarhafinn Þráinn frá Flagbjarnarholti

Þráinn hlaut Sleipnisbikarinn sem er ein virtasta viðurkenning sem veitt er í íslenskri hrossarækt og er almennt talinn æðsti heiður sem kynbótastóðhestur getur hlotið.

„Þráinn frá Flagbjarnarholti gefur stór hross. Höfuð er skarpt með beina neflínu og vel borin eyru en mætti stundum vera fínlegra. Hálsinn er reistur og grannur við háar herðar. Bakið er burðugt, vöðvafyllt og lendin löng. Afkvæmin eru afar fótahá og jafnvægisgóð með sívalan bol. Fætur eru réttir, þurrir, með ágæt sinaskil og öflugar sinar. Hófar eru efnisgóðir með hvelfdan botn, prúðleiki er fremur rýr. Afkvæmin eru bráðger, viljug og kjarkmikil. Töltið er mjúkt og skrefmikið með góðum fótaburði. Brokkið er skrefmikið, mætti vera stinnara og svifmeira. Skeiðið er afar jafnvægisgott, ferðmikið og öruggt, greiða stökkið teygjugott og rúmt. Fetið er takthreint og skrefgott, stundum vantar framtak í það. Þráinn gefur reist, stórmyndarleg og sterkbyggð hross, þau hafa virkjamikið skref og skörulega framgöngu. Þráinn frá Flagbjarnarholti er úrvals kynbótahestur og hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og fyrsta sætið.“

Adrían frá Garðshorni á Þelamörk

Adrían var í öðru sæti en hér eru dómsorð hans:

„Adrían frá Garðshorni á Þelamörk gefur hross í rúmu meðallagi að stærð. Þau eru svipgóð með vel borin eyru. Hálsinn er reistur og hvelfdur við skásetta bóga og háar herðar en mætti stundum vera fínlegri. Bakið er burðugt, lendin öflug og löng en stundum brött. Afkvæmin eru fótahá og jafnvægisgóð, þróttleg á bolinn. Fætur eru þurrir og sterklegir en sinaskil mættu vera meiri. Hófar eru efnistraustir, prúðleiki á fax og tagl er í meðallagi. Adrían gefur hreyfingamikil hross sem eru fljót að ná jafnvægi á gangi. Þau eru rúm, mjúk og takthrein á tölti, mættu vera burðarmeiri á hægu. Þau hafa góðar hreyfingar á brokki en sum eru sviflítil. Afkvæmi Adríans hafa frábært skeiðupplag og skeiðið skrefmikið og rúmt. Stökkið er skrefmikið og hæga stökkið takthreint. Adrían gefur reist og sterkbyggð hross með öfluga yfirlínu, þau eru viljug, teygjugóð á gangi og myndarleg í framgöngu. Adrían gefur alhliða gæðinga, hann hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og annað sætið.“

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link