Þrefaldur danskur sigur í fjórgangi meistara
Þrír efstu knaparnir í fjórgangi meistara komu frá Danmörku Ljósmynd: Anja Mogensen
Úrslit í fjórgangi meistara voru jöfn og spennandi og litlu munaði á efstu knöpum enda þurfti sætaröðun dómara til að skera úr um sigurvegara.
Efstu þrír knaparnir keppa allir fyrir hönd Danmerkur en það eru þau Jessica Hou Geertsen, Andreas Kjelgaard og Frederikke Stougård.
Sætaröðun dómara þurfti til að skera úr um sigurvegara og svo fór að Jessica Hou Geertsen á Hag frá Vorsbæ II stóð uppi sem Norðurlandameistari og öðru sæti varð Andreas Kjelgaard á Stjörnustæl frá Hyjberg. Í þriðja sætiu varð Frederikke Stougård á Austra frá Úlfsstöðum.
A-úrslit í fjórgangi meistara
| #. | Knapi | Hestur | Einkunn |
| 1 | Jessica Hou Geertsen | Hagur frá Vorsabæ II | 7,80 |
| 1 | Andreas Kjelgaard | Stjörnustæll fra Hybjerg | 7,80 |
| 3 | Frederikke Stougård | Austri frá Úlfsstöðum | 7,77 |
| 4 | Kristján Magnusson | Óskar från Lindeberg | 7,73 |
| 5 | Christina Lund | Lukku-Blesi frá Selfossi | 7,70 |
| 6 | Dennis Hedebo Johansen | Muni fra Bendstrup | 7,67 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH