Landsmót Þriðji þáttur af Líflands stofunni

  • 8. júlí 2026
  • Fréttir
Þriðji þáttur af Líflands stofu EiðfaxaTV kom út í kvöld

Næstu daga munum við á Eiðfaxa í samstarfi við Lífland vera með samantektarþætti í lok dags á Landsmóti Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Bjarki Sigurðsson, Hjörvar Ágústsson og Hulda G. Geirsdóttur ásamt Sigrúnu Högna Tómasdóttur.

Í kvöld ræddi Hulda við Gabríel Liljendahl Friðfinnsson, Eik Elvarsdóttir og Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal sem eru í efstu sætum í unglinga- og ungmennaflokki. Einnig spjallaði hún stuttlega við Ásmund Erni Snorrason en hann og Askur frá Holtsmúla eru efstir eftir milliriðla í A flokki.

Arnar Bjarki tók hrossaræktendurna Olil Amble, Berg Jónsson og Ársæl Jónsson tali og spjallaði við Jakob Svavar Sigurðsson sem sýndi Safír frá Laugardælum í meteinkunn á kynbótabrautinni í gær.

Horfðu á þáttinn á EiðfaxaTV eða hér fyrir neðan

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link