Undirbúningur fyrir HM með Glódísi Rún og HorseDay

  • 3. ágúst 2023
  • Sjónvarp
Ferðalagið á HM er hafið og íslensku knaparnir mættir til Oirschot.

Fyrir helgi fóru HorseDay í heimsókn á Sunnuhvoll til Glódísar Rúnar og tóku stöðuna fyrir ferðalagið út en kemur hún til með að keppa á hryssunni Sölku frá Efri-Brú í fimmgangi ungmenna.

„Okkur hjá HorseDay langaði að vita meira um undirbúninginn og ferlið sem tekur við eftir að maður veit fyrir víst að leiðin liggur út  á heimsmeistaramót og fengum Glódísi til að gefa okkur innsýn inn í það. Við skelltum okkur í heimsókn á Sunnuhvoll og tókum spjallið um hvernig þær hafa verið að undirbúa sig og fengum betri innsýn inn í hvað það felur í sér að fara út á heimsmeistaramót.“ 

Myndbandið er hluti 1 af 2 en kemur seinni hlutinn út að heimsmeistaramótinu loknu.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link