Úrslit af Folaldasýningu Hrossaræktarfélags Hrunamanna
Myndin er af glæsilegasta folaldinu Auðbjörgu frá Skollagróf, ljósmyndari Lilja Helgadóttir
Folaldasýning Hrossaræktarfélags Hrunamanna fór fram í Reiðhöllinni á Flúðum sunnudaginn
3.nóvember s.l. Þátttaka var með minna móti en áhorfendur aftur á móti óvenju margir og góð stemming í höllinni.
Dómarar voru Gunnar Arnarsson og Kristbjörg Eyvindsdóttir í Auðsholtshjáleigu og lýstu þau hverju folaldi fyrir sig og tíunduðu kosti og galla.
Úrslit voru sem hér segir:
Hestfolöld:
1.Þór frá Langholtskoti, rauður
F: Vökull frá Síðu
M: Þruma frá Langholtskoti
Eigendur: Systurnar Laufey, Valdís og Katrín í Langholtskoti
2.Hnjúkur frá Hrepphólum, jarpur
F: Haukur frá Haukholtum
M: Glenna frá Hrepphólum
Eigandi: Björgvin Ólafsson Hrepphólum
3.Mónitor frá Miðfelli, móálóttur
F: Stáli frá Kjarri
M: Aldvaka frá Miðfelli
Eigandi: Magnús Gunnlaugsson Miðfelli
Merfolöld:
1.Auðbjörg frá Skollagróf, rauð
F: Arion frá Eystra-Fróðholti
M: Auðna frá Skollagróf
Eigendur: Fjóla Helgadóttir og Sigurður H. Jónsson Skollagróf
2.Hátíð frá Langholtskoti, brún
F: Vökull frá Síðu
M: Drottning frá Langholtskoti
Eigandi: Páll Magnús Unnsteinsson Langholtskoti
3.Dögun frá Hrepphólum, rauðblesótt
F: Tvistur frá Hrepphólum
M: Yrja frá Hrepphólum
Eigandi: Hulda Hrönn Stefánsdóttir Hrepphólum
Áhorfendur kusu svo glæsilegasta folaldið og var það Auðbjörg frá Skollagróf sem vann með
þónokkrum yfirburðum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH