ÚTGÁFUKAFFI Á MÆÐRADAGINN.
Á sunnudaginn kemur, þann 8. maí kl 15, býður Puzzled by Iceland í fjölskylduvænt kaffi í tilefni af upphafi samstarfs okkar og UNICEF…
Þá mun sala hefjast á sérstöku púsli til styrktar UNICEF sem ber heitið Móðurást en mæðradagurinn er einmitt á sunnudaginn.
Frú Vigdís Finnbogadóttir mun taka við fyrstu Móðurástinni en hún er verndari heimsforeldra UNICEF á Íslandi.
Verið velkomin á opið hús í Toppstöðinni í Elliðaárdalnum og fagnið með okkur yfir ljúffengu kaffi og kökum. Allar mömmur eru boðnar sérstaklega velkomnar.
ÚTGÁFUKAFFI VEGNA SAMSTARFS PUZZLED BY ICELAND OG UNICEF
Sunnudaginn 8. maí
kl 15:00
Toppstöðin, Elliðaárdalnum (risastóra, gulbrúna húsið)
Fyrirtækið Puzzled by Iceland var stofnað í ágúst árið 2010 og hefur náð ótrúlegum árangri á skömmum tíma. Nýverið lenti viðskiptahugmyndin í öðru sæti í Gullegginu, frumkvöðlakeppni Innovit, og í lok apríl hlaut fyrirtækið veglegan styrk frá Atvinnumálum kvenna til að fara í útrás með vörumerkið Puzzled by.
Eigendur fyrirtækisins, þær Guðrún Heimisdóttir og Þóra Eggertsdóttir, eru báðar tveggja barna mæður og lá því beinast við að halda útgáfukaffið á mæðradeginum.
,,Við erum afskaplega stoltar af því að vera í komnar í samstarf við UNICEF. Þar vinnur yndislegt fólk og í raun má segja að það séu forréttindi að fá að vinna með þeim.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH