Viðar og Hekla í B-úrslit
Nú er ljóst að nokkrir af sterkustu þátttakendum tölts og fjórgangs hafa tekið ákvörðun um að hvíla hesta sína og einbeita sér að annarri keppnisgreininni. Kemur það okkur Íslendingum mjög vel.
Hin danska Isabelle Felsum, sem er efst inn í fjórgangsúrslitin, hefur afskráð sig úr B-úrslitum töltkeppninnar. Það þýðir að keppandinn í 11. sæti, Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi munu í dag etja kappi í B-úrslitunum í dag kl. 17.30 að staðartíma.
Þá hafa tveir Íslendingar dregið sig úr úrslitum fjórgangs. Eyjólfur Þorsteinsson ætlar að einbeita sér að slaktaumatöltskeppninni Ósk frá Þingnesi, en þar eru þau langefst inn í úrslit. Þá hefur Jóhann Skúlason ákveðið að hvíla Hnokka frá Fellskoti fyrir átökin í gríðarsterkri töltkeppninni.
En vegna afskráningar hjá öðru liði þýðir þetta einnig að nýbakaður heimsmeistari í ungmennaflokki, Hekla Katharína Kristinsdóttir og Gautrekur frá Torfastöðum munu keppa í B-úrslit flokksins í dag með Huldu Gústafsdóttur og Kjuða frá Kirkjuferjuhjáleigu. Úrslitin hefjast kl. 11 að staðartíma.
Það er því agalega spennandi dagur framundan!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH