Jakob vann fjórganginn
Mjög spennandi úrslitakeppni lokið í fjórgangi í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum. Mjög jöfn úrslit og skiptust knapar á að leiða keppnina. Fór svo að Jakob Svavar Sigurðsson á Skarpi frá Kýrholti vann fjórganginn með 7,80 í einkunn. Jakob keppir fyrir lið Hjarðartúns.
Önnur varð Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir á Flóvent frá Breiðstöðum með 7,70 í einkunn. Þau Aðalheiður og Flóvent lentu í smá brasi á stökkinu sem var þeim dýrkeypt en stökkið hefur verið þeirra sterkasta gangtegund. Aðalheiður keppir fyrir lið Ganghesta/Margrétarhof.
Í þriðja sæti varð Glódís Rún Sigurðardóttir á Breka frá Austurási, fjórði Gústaf Ásgeir Hinriksson á Össu frá Miðhúsum, fimmta Ragnhildur Haraldsdóttir á Úlfi frá Mosfellsbæ og sjötta Jóhanna Margrét Snorradóttir á Kormáki frá Kvistum.
Liðaplattann hlaut lið Hestvits/Árbakka en þau hlutu í kvöld 53 stig. Glódís, Gústaf og Jóhanna kepptu öll fyrir lið Hestvits og voru öll í úrslitum. Annað í röðinni er lið Hjarðartúns með 48,5 stig og þriðja liðið er lið Ganghesta/Margrétarhofs með 45,5 stig. Hér fyrir neðan er hægt að sjá stöðuna í liðakeppninni sem og niðurstöður úr A úrslitunum.
Niðurstöður úr A úrslitum í fjórgangi
Fjórgangur V1 – A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Jakob Svavar Sigurðsson Skarpur frá Kýrholti 7,80 Hjarðartún
2 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum 7,70 Ganghestar/Margrétarhof
3 Glódís Rún Sigurðardóttir Breki frá Austurási 7,57 Hestvit/Árbakki
4 Gústaf Ásgeir Hinriksson Assa frá Miðhúsum 7,50 Hestvit/Árbakki
5 Ragnhildur Haraldsdóttir Úlfur frá Mosfellsbæ 7,47 Ganghestar/Margrétarhof
6 Jóhanna Margrét Snorradóttir Kormákur frá Kvistum 7,43 Hestvit/Árbakki
Niðurstöður úr liðakeppninni
Lið Stig
Hestvit/Árbakki 53,0
Hjarðartún 48,5
Ganghestar/Margrétarhof 45,5
Top Reiter 26,0
Hrímnir/Hest.is 21,5
Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 18,5
Austurkot/Pula 18,0
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH