„Maður verður líka að kunna að njóta ferðalagsins“

  • 3. nóvember 2026
  • Fréttir

Nils-Christian Larsen hefur náð góðum árangri á keppnisvellinum en segir að reynslan og ferðalagið að baki sigrunum skipti ekki síður máli. Mynd úr einkasafni Nils-Christian Larsen.

Meistaratitlarnir eru fjölmargir en metnaðurinn er enn sá sami. Nils-Christian Larsen horfir fram á veginn og rifjar upp ferðalagið að baki árangrinum.

Á löngum og farsælum keppnisferli hefur Nils-Christian Larsen skipað sér í hóp fremstu knapa og unnið til fjölda meistaratitla. Þegar hann lítur yfir farinn veg standa þó ekki síður upp úr hestarnir, fólkið og reynslan sem hann hefur öðlast á leiðinni.

Í samtali við Eiðfaxa rifjar hann upp ferilinn, segir frá starfseminni á Kronholt í Danmörku og þeim áformum sem hann hefur um framtíðina.

Litlu skrefin að stóru sigrunum

Nils-Christian hefur lengi lagt áherslu á að setja sér markmið og vinna markvisst að þeim. Hann hefur fundið mikla ánægju í því að sjá hvernig vinnan skilar árangri, skref fyrir skref.

„Þegar ég lít til baka er það fyrst og fremst allt ferðalagið sem stendur upp úr. Ég hef alltaf verið duglegur að setja mér markmið, bæði stór og smá, og mér finnst sérstaklega ánægjulegt að sjá hvernig öll þessi litlu skref og áfangasigrar hafa smám saman skilað sér í stærri árangri.“

Á ferlinum hefur hann fagnað sigrum á stórmótum víða um Evrópu, meðal annars unnið meistaratitla í Noregi, Þýskalandi og Hollandi auk Norðurlandameistaratitla. Að baki titlunum liggur mikil vinna en þegar Nils-Christian rifjar upp ferilinn er það fleira en sigrarnir sem standa upp úr.

„Það sem stendur kannski mest upp úr er ekki bara titlarnir sjálfir, heldur leiðin að þeim. Allir hestarnir sem ég hef fengið að vinna með, fólkið sem hefur verið hluti af ferðalaginu og allt sem maður hefur lært á leiðinni.“

Hestarnir hafa verið stór hluti af lífi Nils-Christian sem hefur um árabil starfað við þjálfun, kennslu og hrossarækt.
Mynd úr einkasafni Nils-Christian Larsen.

Kronholt – þar sem margt fer saman

Keppnisferillinn er aðeins einn hluti af lífi Nils-Christian. Á Kronholt í Danmörku hefur hann byggt upp fjölbreytta starfsemi þar sem hrossarækt, þjálfun, kennsla og sala hrossa fléttast saman.

Starfsemin hefur tekið miklum breytingum í gegnum árin en Nils-Christian hefur haldið fast í þær áherslur sem hann lagði upp með í upphafi.

„Markmiðið hefur alltaf verið að byggja upp góða og faglega starfsemi þar sem gæði hestanna og góð reiðmennska eru í fyrirrúmi.“

Hann lítur á ólíka þætti starfseminnar sem eina heild og segir kennsluna meðal annars mikilvæga fyrir eigin þróun sem reiðmanns.

„Ræktunin gefur okkur tækifæri til að hugsa til lengri tíma, þjálfunin er grunnurinn að öllu og kennslan heldur manni líka á tánum sem reiðmanni.“

Stór áform fyrir Kronholt

Nils-Christian lætur ekki staðar numið við það sem þegar hefur verið byggt upp. Hann hefur ýmsar hugmyndir um framtíð stöðvarinnar og sér tækifæri til að bæta aðstöðuna enn frekar.

„Ég er líka með heilmikil framtíðarplön fyrir Kronholt og margar hugmyndir um frekari uppbyggingu. Mér finnst mjög spennandi að geta haldið áfram að þróa aðstöðuna og skapa enn betri umgjörð utan um starfsemina.“

Samhliða uppbyggingunni vill hann halda áfram að vinna með góða hesta og sjá árangur af ræktunarstarfinu. Þótt framtíðaráformin séu metnaðarfull leggur hann áherslu á að þróa starfsemina án þess að það komi niður á gæðunum.

Á Kronholt í Danmörku fer fram fjölbreytt starfsemi. Nils-Christian hefur jafnframt metnaðarfull áform um frekari uppbyggingu.

Lífið er meira en næsti sigur

Með árunum hefur Nils-Christian farið að horfa öðrum augum á það hvað felst í velgengni. Þótt hann stefni enn að nýjum sigrum hefur hann lært að það skiptir ekki síður máli að njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða.

„Með árunum hef ég líka lært að það er mikilvægt að vera ánægður með það sem maður hefur í dag. Við eigum auðvitað að setja okkur markmið, hafa metnað og vera staðráðin í að ná árangri, en við megum heldur ekki gleyma að njóta þess sem við höfum á meðan við vinnum að næsta markmiði.“

Hann þekkir vel þá tilfinningu að vera stöðugt á leiðinni að einhverju nýju. Með reynslunni hefur hann þó áttað sig á mikilvægi þess að staldra við.

„Það er auðvelt að vera alltaf að eltast við eitthvað meira, næsta sigur, næsta verkefni eða næsta stóra markmið. En lífið má ekki bara snúast um að komast á næsta áfangastað. Maður verður líka að kunna að njóta ferðalagsins.“

Nils-Christian Larsen hefur mörg járn í eldinum og horfir bjartsýnn til framtíðar.

Og kannski nokkrir titlar í viðbót

Þegar Nils-Christian horfir til framtíðar vill hann finna jafnvægi milli þess að fylgja metnaðinum og njóta lífsins með fólkinu í kringum sig.

„Fyrir mér snýst framtíðin því um að finna gott jafnvægi. Halda áfram að vera metnaðarfullur, forvitinn og hafa stór draumamarkmið, en um leið gefa sér tíma til að njóta lífsins, fólksins í kringum sig og allra litlu hlutanna sem gera dagana góða.“

Þótt viðhorf hans til árangurs hafi breyst er keppnisskapið greinilega enn til staðar. Hann slær að minnsta kosti á létta strengi í lok samtalsins.

„Og auðvitað væri ekkert verra að bæta nokkrum titlum í safnið í leiðinni!“

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link