Breytingunni slegið á frest
Vegna fréttar um hækkun lágmarka til afkvæmaverðlauna vill Guðlaugur Antonsson landsráðunautur koma eftirfarnadi á framfæri:
Á fagráðsfundi sem haldin var á mánudaginn og var þar ákveðið í samráði við kynbótafræðingana að geyma breytingar á lágmörkum til afkvæmaverðlauna að minnsta kosti þar til nýtt kynbótamat liggur fyrir í haust þar sem tekið er tillit til „gangráðsins“
Kynbótamatið mun að öllum líkindum breytast talsvert við útreikninga nú í haust, en þar verða hestar sem ekki sýna skeið ekki reiknaðir á sama hátt og verið hefur. Fram að þessu hafa hestar sem ekki sýna skeið verið reiknaðir út frá einkunninni 5,0 fyrir gangtegundina en framvegis verður því breytt.
Guðlaugur vill einnig benda á að kynbótaframför í stofninum er núna um eitt stig á ári og því er hæpið að bera saman kynbótamat frá einu ári til annars líkt og gert er í greininni Fækkun afkvæmahópa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH