Landslið Bretlands
Landslið Bretlands fyrir HM var kynnt nú á dögunum. Bretland sendir til leiks sex knapa og hesta, það sem vekur athygli blaðamanns er að fimm þeirra eru á hestum fæddum á Íslandi en einn knapi, Aidan Carson, er á hesti fæddum á Bretlandseyjum.
Á Heimsmeistaramótinu í Hollandi 2017 unnu Bretar sitt fyrsta gull þegar Charlotte Cook sigraði keppni í 100 metra skeiði á tímanum 7,42. Charlotte er í liðinu með Sælu og hyggst verja titilinn.
Liðið er þannig skipað.
Aidan Carson og Óðinn frá Inchree
Svenja Rumpf og Björk frá Hofi I
Mike Adams og Kafteinn frá Kommu
Jemimah Adams og Skírnir frá Skipaskaga
Nadine Kunkel og Kjarkur frá Efri-Rauðalæk
Charlotte Cook og Sæla frá Þóreyjarnúpi
Styttu haustið með EiðfaxaTV