Æfingamót Léttis
Haldið verður æfingamót fyrir börn og unglinga í Létti sunnudaginn 9 maí. Keppt verður í Tölt T1 – T8 – Fjórgangur.
Leyfilegt er að mæta að hámarki með 2 hross. Og má skrá sig í eina töltgrein og fjórgang (leyfilegt er að mæta með báða hestana í báðar greinarnar).
Ekki verða riðin úrslit né raðað í sæti þar sem þetta er einungis æfingamót og fær knapinn skriflega umsögn að móti loknu.
Skráning er á staðnum og tekið er á móti skráningum frá kl. 13:00 til 13:30
Snyrtilegur klæðnaður æskilegur en ekki er nauðsyn að vera í keppnisgallanum frekar en þið viljið. Mótið verður haldið úti ef veður leyfir.
Æskulýðsnefnd Léttis
Tölt – T1
Hestar sem taka þátt í þessari töltgrein mega ekki taka þátt í annarri töltgrein á sama móti.
Einn keppir í einu.
Verkefni
1. Keppni hefst á miðri skammhlið, riðinn er einn hringur á hægu tölti upp á hvora hönd sem er. Hægt niður á fet á miðri skammhlið og skipt um hönd
2. Riðið er af stað á miðri skammhlið á hægu tölti og riðinn einn hringur með greinilegum hraðamun á langhliðum.
3. Frá miðri skammhlið er riðinn einn hringur á yfirferðartölti.
Tölt – T8
Hestar sem taka þátt í þessari töltgrein mega ekki taka þátt í annarri töltgrein á sama móti.
2 eða fleiri eru inná vellinum í einu, atriði eru sýnd samkvæmt fyrirmælum þular.
Verkefni
1. Frjáls ferð á tölti – hægt niður á fet og skipt um hönd
2. Frjáls ferð á tölti
Fjórgangur – V1
Hestar sem taka þátt í þessari grein mega ekki taka þátt í öðrum fjór – eða fimmgangsgreinum á sama móti.
Einn keppir í einu. Sýna má greinina á hvora hönd sem er.
Knapinn hefur fjóra og hálfan hring til umráða til að sýna eftirfarandi gangtegundir í þeirri röð sem þeir sjálfir kjósa.
1. Hægt tölt
2. Hægt – til milliferðar brokk
3. Meðalfet
4. Hægt – til milliferðar stökk
5. Yfirferðartölt
Einungis má sýna hverja gangtegund einu sinni. Fet skal sýna hálfan hring og aðrar gangtegundir heilan hring.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH