Landsamband hestamanna Stjórn LH næstu tvö árin

  • 31. október 2026
  • Fréttir

Stjórn LH f.v. Jón Þorberg Steindórsson, Sóley Margeirsdóttir, Rósa Dögg Þórsdóttir, Rósbjörg Jónsdóttir, Reynir Atli Jónsson, Hilmar Guðmannsson, Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, Unnur Rún Sigurpálsdóttir, Ólafur Gunnarsson, Sigurbjörn Eiríksson og Linda Björk Gunnlaugsdóttir.

65. Landsþing Landssambands hestamannafélaga

Kosningu á stjórn LH er lokið hér á landsþinginu í Hveragerði. Það var sjálfkjörið í aðalstjórn og formann stjórnar LH en Linda B. Gunnlaugsdóttir heldur áfram sem formaður LH og í aðalstjórn eru eftirfarandi aðilar:

  • Formaður: Linda Björk Gunnlaugsdóttir (Hestamannafélaginu Spretti)
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, Glampi
  • Ólafur Gunnarsson, Jökull
  • Unnur Rún Sigurpálsdóttir, Skagfirðingur
  • Sóley Margeirsdóttir, Geysir
  • Sigurbjörn Eiríksson, Sprettur
  • Jón Þorberg Steindórsson, Geysir

Í varastjórn voru sex í framboði en fimm fulltrúar eru kosnir í varastjórn í varastjórn eru eftirfarandi aðilar:

  • Hilmar Guðmannsson, Fáki
  • Reynir Atli Jónsson, Freyfaxi
  • Rósa Dögg Þórsdóttir, Blæ
  • Rósbjörg Jónsdóttir, Sörla
  • Kjartan Gunnar Jónsson, Geysi

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link