Norðurlandamót í gæðingakeppni
Glæsileg gæðingakeppni verður haldin í Noregi 13-15 september í ár, þar sem öllum norðurlandaþjóðunum er boðið að senda lið til keppni, keppt verður í A-flokk, B-flokk, Ungmennaflokk og unglingaflokk. Hvert land má senda 10 fullorðna, 8 ungmenni og 6 unglinga. Keppt verður samkvæmt íslensku reglunum, einn inná í einu. Vegleg peningaverðlaun verða í boði fyrir fyrstu sætin og mun norska sjónvarpið sýna frá mótinu og fjalla um íslenska gæðinginn
Einnig verður keppt í skeiðgreinum 250 metra, 150 metra og 100 metra
Hestamannafélagið Sleipnir í Hamar sem heldur mótið ásamt fleiru góðu fólki í Noregi halda þetta í tilefni þess að í ár eru 20 ár síðan þeir héldu sína fyrstu gæðingakeppni og vilja veg gæðingakeppninnar sem bestan en fyrsta gæðingakeppnina héldu þeir 1993, eins og þeir segja upp á norsku ”Konkurranse for vakre, villige og imponerende Islandshester”.
Mikil aukning hefur verið í vinsældum og áhuga á gæðingakeppninni á erlendri grundu og er þetta klárlega stórt skref í rétta átt og vonandi aðeins upphafið að einhverju miklu stærra.
Nú þegar hafa Norðmenn sent öllum norðurlandaþjóðunum boð um að senda lið og er mikill áhugi og ánægja með þetta framtak Norðmanna. Og verður spennandi að sjá hverjir fara fyrir Íslands hönd á þetta mót.
Staðurinn sem þetta er haldið á er við Hamar, en þar er Veðreiðarbrautin í Biri með 300 metra hringvelli og beinni braut, risaskjá og aðstæður allar hinar bestu, hesthús og aðstaða fyrir áhorfendur mjög góðar.
heimasíða mótsins http://www.korksleipnir.org/Nordic-Gaedinga-2013