Reiðhestkostir íslenska hestsins staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

  • 13. september 2026
  • Fréttir
Skorar hæst allra kynja sem rannsökuð voru í reiðhæfni, öryggi og hugrekki

Nýleg og áhugaverð rannsókn á reiðhestum sýnir að reiðhestskostir íslenska hestsins eru miklir. Rannsóknin var birt í vísindaritinu Applied Animal Behaviour Science og gefur upplýsingar um eiginleika 14 mismunandi hreinræktaðra hestakynja.

Rannsóknin byggði á gögnum úr E-BARQ (e.Equine Behaviour Assessment and Research Questionnaire), sem er alþjóðlegur spurningalisti til þess gerður að meta hegðun hrossa. Svör bárust frá eigendum 1.635 hreinræktaðra hrossa. Markmiðið var að komast að því hvort almennar hugmyndir fólks um skapgerð mismunandi hestakynja ættu við rök að styðjast.

Skorar hæst í reiðhæfni og öryggi

Niðurstöðurnar eru góðar fyrir íslenska hestinn. Rannsakendur greindu svörin í mismunandi flokka og mældist íslenski hesturinn hæstur allra í flokknum sem sneri að „reiðhæfni“. Hann var metinn öruggasta kynið til útreiða, auðveldastur í reið og sá hestur sem auðveldast er að stöðva. Þá var hann ólíklegastur allra kynta til þess að sýna kergju.
Höfundar rannsóknarinnar telja þennan árangur m.a. mega rekja til langrar einangrunar stofnsins og þess að hesturinn var ræktaður sem traustur fararskjóti í krefjandi umhverfi á Íslandi í margar aldir. Þá er það talið hafa skipt sköpum hversu snemma ræktunarstarfið snerist um að rækta traustan reiðhest.

Íslenski hesturinn reyndist einnig vera það kyn sem sýndi mesta hugrekkið gagnvart nýjum hlutum og í samskiptum við önnur dýr. Til viðbótar sýndi íslenski hesturinn langmesta þolið fyrir líkamlegri snertingu (t.d. við álagningu) og hann mældist auðveldastur allra hestakynja til að nálgast á jörðu niðri.

Rannsakendur álykta í lok rannsóknar sinnar að íslenski hesturinn skori afar hátt í þeim hegðunareiginleikum sem flestir reiðmenn sækjast eftir. Fyrir okkur sem þekkjum, notum og höldum því fram að íslenski hesturinn sé framúrskarandi reiðhestur sýnir þetta fram á það sem við teljum.

Ef fólk vill kynna sér rannsóknina nánar er hægt að lesa hana með því að smella hér.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link