Hestaþing Sindra

  • 10. júní 2013
  • Fréttir
Hestaþing Sindra

Drög að Dagskrá:

Laugardagur 15. júní:

Kl 10:00 Forkeppni í B- flokki gæðinga – úrtaka fyrir fjórðungsmót.

Kl 12:30 Hlé og undirbúningur fyrir hópreið

Kl 13:00 Hópreið, mótsetning

Kl 14:00 Forkeppni í polla-, barna-, unglinga-, ungmenna- og A- flokki.- úrtaka fyrir fjórðungsmót. (Pollaflokkur kláraður).

Skráningargjöld fyrir ungmenna- A- og B- flokk og Tölt er 3500 kr á hest (hámark 14000 á knapa)

Kl 19:00 Opin töltkeppni.  1. verðlaun 50.000 kr í reiðufé

Opin töltkeppni, keppt er til úrslita. Skráningu í Tölt lýkur 1 klst fyrir keppni

 

Sunnudagur 16. júní:

Kl 11:00 úrslit í B- flokki, barna-, unglinga-, ungmenna og A- flokki

Kl 14:30 Kappreiðar – opnar öllum (Peningaverðlaun í kappreiðum)

100 m fljótandi skeið

150 m skeið –

250 m skeið –

300 m brokk –

300 m stökk –

Skráningargjöld í kappreiðar er 1500 kr á hest og skráningu lýkur 1 klst fyrir keppni.

 

Við skráningu er farið inn á Sindrasíðuna þar sem er linkur inn á skráningarsíðuna. (linkurinn heitir SKRÁNINGARVEFUR) og er hægra megin á síðunni.

Slóðin inn á Sindrasíðuna er www.123.is/sindri.   Skráningu lýkur kl 23:59 þriðjudaginn 11. júní.  Séu vandræði með skráningu eða eitthvað óljóst er hægt að hafa samband við Hlyn í síma 8481580.

 

Mótanefnd áskilur sér rétt til að breyta tímasetningum á dagskrá eftir þátttökunni og einnig að vera með sérstaka forkeppni í tölti og gæðingakeppni sé þátttaka óvenju mikil. Það verður þó auglýst með fyrirvara.

 

Aðgangseyrir er kr 2.000.- fyrir tvo daga en 1.500.- fyrir einn dag. Frítt er fyrir 12 ára og yngri.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link