Mette í norska landsliðinu

  • 6. júlí 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Norska landsliðið klárt fyrir Heimsmeistaramótið í Herning.

Norska Meistaramótið var haldið um helgina en það var jafnframt úrtaka fyrir Heimsmeistaramótið í Herning. Norska liðið verður að teljast nokkuð sterkt en í liðinu eru Anna Stine Haugen og Muni frá Kvistum en þau urðu heimsmeistarar í fjórgangi árið 2011. Oda Ugland og Hárekur frá Vindási eru tvöfaldir heimsmeistarar en þau keppa í ungmennaflokki. Þau sigruður töltið í ungmennaflokki á síðasta heimsmeistaramóti og urður samanlagðir sigurvegarar í fjórgangsgreinum. Mette Mannseth er einnig í liðinu með Stjörnustæl frá Dalvík. Stjörnustæll og Mette sigruðu fimmganginn á Íslandsmótinu í fyrra.

Landslið Noregs 2015

Fullorðnir:
Anne Stine Haugen / Muni frá Kvistum (pers. reserve Tindra fra Tyresvoldsdal) -Glói
Bernt Severinsen / Tigull fra Kleiva – Hrimnir
Martin Rønnestad / Svartur vom Hochwald – Hekla
Mette Moe Mannseth / Stjörnustæll frá Dalvik – Gandur
Nils Christian Larsen / Viktor fra Diisa (pers. reserve Dynfari frá Steinnesi) – Gandur
Tina Kalmo Pedersen / Amadeo vom Lucahof – Hrimnir
Thomas Larsen / Zorro frá Grímsstödum – Hrani

Til vara:
Stian Pedersen / Bylur frá Breidholti, Gbr – Vestnes

Ungmenni:
Camilla Wangen / Reyr frá Melabergi – Hekla
Caroline Wangen / Láki frá Hemlu – Hekla
Ingrid Marie Larsen / Dimmey fra Jakobsgården – Vestnes
Milrid Mustadslien / Fálmar frá Ketilsstödum – Sleipnir
Oda Ugland / Hárekur frá Vindasi – Hrani
Stine Smidtsrød Baastad / Tvistur frá Brædratungu – Sleipnir

Til vara:
Mari Odenrud / Hrynjandi fra Fageräng – Sleipnir

Kynbótahross
Hryssur:

5 vetra Hind fra Stall Ellingseter, NO2010215460, 8,09
6 vetra Oktavía fra Hellesylt, NO2009215409, 8,16
7 vetra og eldri Ísold fra Sigersberg, NO2008204455, 8,35

Stóðhestar:

5 vetra Bjartmar fra Nedre Sveen, NO2010104091, 8,29
6 vetra Otri fra Jakobsgården, NO2009115407, 8,22
7 vetra og eldri Noi fra Jakobsgården, NO2008115081, 8,56

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link